Innritun í leikskóla á Akranesi – skólaárið 2025–2026
Innritun í leikskóla á Akranesi fyrir skólaárið 2025–2026 hófst í síðustu viku. Foreldrum/forráðamönnum barna sem eiga lögheimili á Akranesi og eru fædd til og með 31. maí 2025 gefst kostur á að sækja um leikskólapláss fyrir barn sitt.
Vinsamlegast staðfestið umsókn í Völu, eða hafið samband við viðkomandi leikskólastjóra ef staðfesting liggur ekki fyrir.
Fjölgun leikskólabarna og innritun
Gert er ráð fyrir að útskriftarhópur leikskólanna sumarið 2026 verði minni en sá hópur barna sem áætlað er að innrita að hausti. Til að mæta þessari fjölgun er gert ráð fyrir að fjölga plássum við leikskólann Akrasel og mun leikskólinn því taka inn fleiri börn en undanfarin ár
Nánari upplýsingar
Leikskólastjóri veitir nánari upplýsingar um leikskólann, hvenær vistun getur hafist og hvernig aðlögunartíma verður háttað.
- Akrasel – Anney Ágústsdóttir / akrasel@akrasel.is
- Garðasel – Ingunn Sveinsdóttir / gardasel@gardasel.is
- Teigasel – Íris G. Sigurðardóttir / teigasel@teigasel.is
- Vallarsel – Vilborg Valgeirsdóttir / vallarsel@vallarsel.is





