Fara í efni  

Borgarstjóri í heimsókn

Dagur B. Eggertsson og Regína Ásvaldsdóttir
Dagur B. Eggertsson og Regína Ásvaldsdóttir

Borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson og Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri funduðu í stjórnsýsluhúsinu á Akranesi í gær, 12. janúar. Að sögn Regínu Ásvaldsdóttur bæjarstjóra fóru þau yfir fjölmörg mál sem snerta bæði sveitarfélögin, svo sem málefni Sundabrautar, Grundartangasvæðisins, Faxaflóahafna og Orkuveitu Reykjavíkur. Einnig ræddu þau samstarf sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu en Dagur er formaður stjórnarinnar.

,,Fundurinn var mjög gagnlegur en við eigum í miklu samstarfi við Reykjavíkurborg í gegnum OR og Faxaflóahafnir“ segir Regína. Regína segir vilja til þess að treysta samstarfið enn betur. 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu