Byggðasafnið í Görðum
Írskir dagar
Hvenær
1.- 4. júlí
Ný grunnsýning á Byggðasafninu
Byggðasafnið í Görðum býður gestum einstaka innsýn í liðna tíma en jafn heildstæð sýning er fágæt á landsvísu. Sýningar safnsins eru afar fjölbreyttar, m.a. í nokkrum húsum sem sum hafa verið flutt á svæði safnsins en á safninu eru einnig sérstakt kvikmyndarými og sýningarými fyrir skammtímasýningar. Í fastasýningum safnsins er fjallað um lífið til sjós, í landi, við vinnu og í leik. Heimsókn á Byggðasafnið í Görðum leikur við öll skilningarvit gesta.
Við bjóðum börn sérstaklega velkomin en það er ratleikur á safninu fyrir börn og verðlaun að leik loknum. Opið alla helgina frá kl. 10:00-17:00.





