Velferðar- og mannréttindaráð
1. 2606-4670 - Kynningar á velferðar- og mannréttindasviði 2026
Kynning á stuðnings- og stoðþjónustu hjá Akraneskaupstað.
Velferðar- og mannréttindaráð þakkar Ernu Dögg Pálsdóttur forstöðumanni og Bryndísi
Helgadóttur verkefnastjóra stuðnings- og stoðþjónustu á velferðar- og mannréttindasviði fyrir
greinargóða kynningu á stöðu deildarinnar og fyrirliggjandi verkefnum.
2. 2609-7066 - Samningur um móttöku flóttafólks 2027
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur sent viðauka IV við samning Akraneskaupstaðar um
samræmda móttöku frá 18. mars 2024. Er samningurinn óbreyttur frá fyrri samningum að öðru
leyti en því að leitast er við að hafa fjölda í samræmi við nýtingu. Tölur frá VMST bera þess merki
að tilefni sé til að lækka fjöldann úr 100 niður í 50. Einnig hefur ráðuneytið bætt við ákvæði um
skaðleysi sveitarfélags ef kemur til þess að mælt verði fyrir um þjónustuna og greiðslur vegna
hennar í lögum. Fyrirhugaðar eru breytingar á framtíðarsamningum vegna móttöku flóttafólks.
Verða þær breytingar undirbúnar í nánu samstarfi við sveitarfélögin og aðra hlutaðeigandi aðila.
Jafnframt er ljóst að breytingar á þjónustukerfum kalla á vandaðan undirbúning og geta því ekki
komið að fullu til framkvæmda fyrr en á síðari hluta árs 2027. Af þessum sökum óskar ráðuneytið
efir því að núgildandi samningar um samræmda móttöku flóttafólks verði framlengdir til ársloka
2027.
Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir viðauka við þjónustusamning um samræmda móttöku
flóttafólks fyrir sitt leyti, sem felur í sér lækkun á heildarfjölda samnings úr 100 einstaklingum í 50,
en það er til samræmis við raunnýtingu. Velferðar- og mannréttindaráð óskar eftir staðfestingu frá
ráðuneytinu um að fjöldi í samningi taki breytingum í samræmi við mögulega fjölgun í hópi
flóttafólks á árinu 2027. Málinu vísað til afgreiðslu í bæjarráði.
3. 2601-0892 - Framhaldsmál - Fjöliðjan - beiðni um aukið stöðugildi leiðbeinanda
Beiðni um nýtt stöðugildi leiðbeinanda í Fjöliðju. Fyrirliggjandi er minniblað sem skýrir og
kostnaðarmetur þörfina.
Velferðar- og mannréttindaráð er fylgjandi því að samþykkja aukningu um eitt stöðugildi út árið
2027, með möguleika á framlengingu, á grundvelli fyrirliggjandi gagna. Velferðar- og
mannréttindaráð áréttar mikilvægi þess að innleitt verði mönnunarmódel fyrir Fjöliðjuna til að
tryggja öryggi og skýra yfirsýn. Málinu vísað til afgreiðslu í bæjarráði.
4. 2601-0354 - Skógarlundur 42, stofnframlag vegna íbúðakjarna 2023
Staða málsins yfirfarin.
Velferðar- og mannréttindaráð leggur áherslu á að Akraneskaupstaður geri málið upp með
formlegum hætti.
5. 2609-7068 - GEV - Reglugerð um innra eftirlit vinnuveitenda félagslegrar velferðarþjónustu nr.
818/2026
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) vekur athygli á reglugerð um innra eftirlit veitenda
félagslegrar velferðarþjónustu nr. 818/2026 sem tók gildi þann 16. júlí sl. Athygli er vakin á því að
ef stjórnvald felur rekstraraðila með samningi að annast lögmælta þjónustu fyrir hönd þess, skal
kveðið á um í samningnum að stjórnvald beri ábyrgð á innra eftirliti með þjónustunni. Eigi síðar en
1. janúar 2027 skulu sveitarfélög: a. Hafa lokið við að skjalfesta verklög samkvæmt reglugerðinni. b.
Hafa upplýst GEV um reglubundnar úttektir skv. 4. mgr. 10. gr. reglugerðarinnar. Óskað er eftir því
að sveitarfélög upplýsi GEV um framangreint með því að senda svarpóst á netfangið gev@gev.is
með upplýsingum um tilbúin verklög og reglubundnar úttektir eigi síðar en 1. janúar 2027.
Velferðar- og mannréttindaráð tekur heilshugar undir bókun stjórnenda í velferðarþjónustu á
Vesturlandi um áhyggjur af þeim knappa tímaramma sem sveitarfélögum er veittur til innleiðingar
á innra eftirliti veitenda félagslegrar velferðarþjónustu, en skv. reglugerðinni skulu
þjónustuveitendur hafa lokið skjalfestingu verklags og upplýst Gæða- og eftirlitsstofnun
velferðarmála (GEV) fyrir 1. janúar 2027. Velferðar- mannréttindaráð fagnar aukinni áherslu á
gæði, innra eftirlit og markvisst umbótastarf í velferðarþjónustu, líkt og reglugerð nr. 818/2026
kveður á um, en fer þess vinsamlega á leit að Sambandið beiti sér fyrir að sveitarfélögum verði veitt
meira svigrúm til markvissar innleiðingar.
6. 2610-7888 - Verkefnalisti meirihluta 2026-2030 - velferðar- og mannréttindasvið
Farið yfir opinberan verkefnalista meirihlutans og málin ígrunduð út frá forgangsröðun, mannafla
og kostnaði. Á fundi Öldungaráðs þann 21.10.2026 var gerð eftirfarandi bókun: Öldungaráð beinir
því til velferðar- og mannréttindaráðs að verkefnum meirihlutans verði forgangsraðað. Öldungaráð
leggur áherslu á að sett verði í forgang að tryggja í samvinnu við ríkið um 60 ný hjúkrunar- og
hvíldarrými á Höfða og að fjölga úrræðum fyrir fólk með heilabilun.
Velferðar- og mannréttindaráð felur sviðsstjóra velferðar- og mannréttindasviðs að hefja
undirbúning á þeim verkefnum sem snúa að greiningum, en þær eru nauðsynlegur undanfari
annarra verkþátta.
16. 2610-7775 - 32. fundur notendaráðs um málefni fatlaðs fólks á Akranesi
Fundargerð 32. fundar notendaráðs um málefni fatlaðs fólks á Akranesi.
Lagt fram.
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





