Fara í efni  

Velferðar- og mannréttindaráð

274. fundur 27. október 2026 kl. 14:00 - 16:00 Lindin, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Bjarnheiður Hallsdóttir formaður
  • Jónína Margrét Sigmundsdóttir varaformaður
  • Aníta Eir Einarsdóttir aðalmaður
  • Ingvar Örn Ákason áheyrnarfulltrú
  • Guðríður Þorbjörnsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs
  • Sólveig Sigurðardóttir deildarstjóri farsældarþjónustu barna
Fundargerð ritaði: Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs

1. 2603-2485 - Mánaðayfirlit 2026

Mánaðaryfirlit janúar til ágúst 2026. Velferðar- og mannréttindasvið.

Velferðar - og mannréttindaráð þakkar Kristjönu Helgu Ólafsdóttur fjármálastjóra fyrir góða
yfirferð á fjárhagslegri stöðu velferðar- og mannréttindasviðs. Ráðið lýsir yfir ánægju með stöðuna
og þeim augljósa árangri sem náðst hefur í bættri yfirsýn og hagræðingu á sviðinu.

 

2. 2606-4550 - Fjöliðjan - Hádegismatur fyrir starfsfólk

Starfsfólk Fjöliðjunnar hefur fengið mat frá Akraseli allt frá árinu 2018. Komið er að endurskoðun á
því fyrirkomulagi en Akrasel mun sinna þjónustunni út árið 2026.

Velferðar- og mannréttindaráð felur sviðsstjóra að skoða útfærslur nánar og leggja tillögur fram í
ráðinu.

 

3. 2609-7099 - Dala.care - innleiðingarferli

Til skoðunar er að innleiða Dala.care sem er vefkerfi fyrir þjónustu á velferðar- og
mannréttindasviði. Lagt er til að hefja innleiðinguna í stuðnings- og stoðþjónustu og
búsetuþjónustu fatlaðs fólks . Lagt er fram minnisblað með kostnaðargreiningu. Á fundi
Öldungaráðs þann 21.10.2026 var gerð eftirfarandi bókun: Öldungaráð lýsir ánægju með
innleiðingu á vefkerfinu Dala.care. Kerfið hentar vel fyrir alla velferðarþjónustu, er einfalt í notkun,
auðvelt að aðlaga að breyttum þjónustuþörfum og er kostnaðarlega hagkvæmt.

Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti að farið verði í innleiðingu á kerfi sem bæði
býður upp á fleiri lausnir og er ódýrara en það kerfi sem notast er við í dag, þrátt fyrir að
búsetuþjónustan bætist við. Málinu vísað til afgreiðslu í bæjarráði

 

4. 2601-0726 - Framhaldsmál - Akstursþjónusta Akraneskaupstaðar 2024

Fyrir liggur minnisblað Valdísar Eyjólfsdóttur um lausnir á bifreið fyrir akstursþjónustu
Akraneskaupstaðar. Bílinn sem nú er í notkun er kominn til ára sinna með tilheyrandi
viðhaldskostnaði og nauðsynlegt að finna lausn sem tryggir veitingu þjónustunnar og öryggi
notenda.

Velferðar- og mannréttindaráð mælir með að farin verði sú leið að kaupa bifreið til að tryggja
öryggi notenda og órofna þjónustu. Málinu vísað til afgreiðslu í bæjarráði.

 

5. 2609-7160 - 31. fundur notendaráðs um málefni fatlaðs fólks á Akranesi

Fundargerð 31. fundar notendaráðs um málefni fatlaðs fólks á Akranesi.
Lögð fram.

6. 2610-7304 - 31. fundur öldungaráðs

Fundargerð öldungaráðs frá 21.10.2026 lögð fram til kynningar.

Fundargerð 31. fundar öldungaráðs lögð fram til kynningar.


Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu