Fara í efni  

Velferðar- og mannréttindaráð

272. fundur 15. september 2026 kl. 14:00 - 16:00 Lindin, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Bjarnheiður Hallsdóttir formaður velferðar- og mannréttindaráðs
  • Jónína Margrét Sigmundsdóttir varaformaður velferðar- og mannréttindaráðs
  • Aníta Eir Einarsdóttir aðalmaður
  • Ingvar Örn Ákason áheyrnarfulltrú
  • Guðríður Þorbjörnsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sveinborg Kristjánsdóttir deildarstjóri farsældarþjónustu fullorðinna
Fundargerð ritaði: Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs

1. 2609-6507 - Upphæðir fjárhagsaðstoðar 2026

Upphæðir fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga 2026.

Lagt fram til kynningar.

 

2. 2604-3228 - Skammtímadvöl á Laugarbraut - Frumáætlun

Skammtímadvöl á Akranesi. Frumskoðun á að koma fyrir skammtímadvöl á lóðinni við Laugarbraut 6.

Velferðar- og mannréttindaráð telur nauðsynlegt að farið verði í uppbyggingu skammtímadvalar á Akranesi. Ráðið er þó einhuga um að ekki sé tímabært að fara í svo umfangsmikla fjárfestingu strax á næsta ári. Leggja þarf megin áherslu á að auka hagræði og bæta þjónustu við fötluð börn í sveitarfélaginu, með uppbyggingu búsetuúrræðis fyrir fötluð börn. Með því er dregið verulega úr kostnaði vegna kaupa á sértækum búsetuúrræðum. Kostnaður sveitarfélagsins vegna kaupa á sértækum búsetuúrræðum fyrir börn á árinu 2026 mun að óbreyttu verða kr.  436.919.466. Með því að leggja áherslu á uppbyggingu búsetuúrræða fyrir börn á Akranesi skapast fjárhagslegt rými til frekari uppbyggingar í þjónustu við fötluð börn til framtíðar. Velferðar- og mannréttindaráð vill koma þakklæti á framfæri til Lárusar Ársælssonar umhverfisstjóra og Hildigunnar Árnadóttur sviðsstjóra velferðar- og mannréttindasviðs fyrir framlagða áætlun, sem mun nýtast vel á seinni stigum. Bókun ráðsins vísað til bæjarráðs til upplýsinga.

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu