Fara í efni  

Velferðar- og mannréttindaráð

271. fundur 01. september 2026 kl. 14:00 - 17:00 Lindin, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Bjarnheiður Hallsdóttir formaður velferðar- og mannréttindaráðs
  • Jónína Margrét Sigmundsdóttir varaformaður velferðar- og mannréttindaráðs
  • Ingvar Örn Ákason áheyrnarfulltrú
  • Guðríður Þorbjörnsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Karl Jóhann Haagensen varamaður
  • Sólveig Sigurðarsdóttir deildarstjóri farsældarþjónustu barna
  • Sveinborg Kristjánsdóttir deildarstjóri farsældarþjónustu fullorðinna
Fundargerð ritaði: Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs

1. 2606-4670 - Kynningar á velferðar- og mannréttindasviði 2026

Kynning ráðgjafaþjónustu.Hrefna Rún Ákadóttir, yfirfélagsráðgjafi kynnir verkefni og þjónustu ráðgjafadeildar.

Velferðar- og mannréttindaráð þakkar Hrefnu Rún Ákadóttur fyrir greinargóða kynningu.

 

2 .2608-6219 - Beiðni um húsbúnaðarkaup fyrir búsetuna á Beykiskógum

Forstöðumaður búsetunnar á Beykiskógum óskar eftir til heimild til kaupa á stólum fyrir starfsmannarýmið á Beykiskógum.

Velferðar- og mannréttindaráð styður þessa umsókn og telur mikilvægt að farið verði í kaup á stólum fyrir starfsmenn Beykiskóga. Einnig styður ráðið við kaup á tveimur hjólum fyrir starfsmenn, enda er það nauðsynlegt að starfsmenn geti fylgt íbúum sem sjálfir fara um á reiðhjólum. Málinu er vísað til afgreiðslu í bæjarráði.

 

3. 2608-6220 - Endurhæfingarhúsið Hver - viðbótarrými fyrir starfsemina á Smiðjuvöllum 28

Forstöðumaður Endurhæfingarhússins Hver óskar eftir viðbótarrými fyrir starfsemina. Fjöldi notenda og flóknar þjónustuþarfir þeirra kalla á aukið rými.

Velferðar- og mannréttindaráð skilur þörfina og vísar þessari umræðu í yfirstandandi fjárhagsáætlun fyrir 2027.Vísað til umræðu í bæjarráði.

 

4. 2601-0072 - Framhaldsmál - Skammtímadvöl á Vesturlandi

Lögð er fram tillaga að rekstri skammtímadvalar á Vesturlandi sem framkvæmdastjórar sveitarfélaga á Vesturlandi unnu í samstarfi við sviðsstjóra velferðarsviða á svæðinu.

Velferðar- og mannréttindaráð fagnar framlagðri tillögu að rekstri skammtímadvalar fyrir fötluð börn á Vesturlandi og samþykkir hana fyrir sitt leyti.

Bókun frá fulltrúa Samfylkingar: Áréttar mikilvægi þess að þátttaka í þessari uppbyggingu hafi ekki áhrif á áætlanir sveitarfélagsins um uppbyggingu skammtímadvalar á Akranesi.

Málinu vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu