Fara í efni  

Velferðar- og mannréttindaráð

270. fundur 18. ágúst 2026 kl. 15:00 - 17:00 Lindin, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Bjarnheiður Hallsdóttir formaður velferðar- og mannréttindaráðs
  • Jónína Margrét Sigmundsdóttir varaformaður velferðar- og mannréttindaráðs
  • Aníta Eir Einarsdóttir aðalmaður
  • Guðríður Þorbjörnsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Ingvar Örn Ákason áheyrnarfulltrúi
  • Sólveig Sigurðardóttir deildarstjóri farsældarþjónustu barna
  • Sveinborg Kristjánsdóttir deildarstjóri farsældarþjónustu fullorðinna
Fundargerð ritaði: Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs

1. 2606-4670 - Kynning á endurhæfingarhúsinu HVER 2026

Forstöðumaður endurhæfingarhússins Hver, Thelma Hrund Sigurbjörnsdóttir, fer yfir hlutverk Hver, stöðu og mat á áherslum í fjárhagsáætlun 2027.

Velferðar- og mannréttindaráð þakkar Thelmu Hrund Sigurbjörnsdóttur fyrir skýra og upplýsandi yfirferð um starfsemi endurhæfingarhússins Hver.

 

2. 2601-0744 - Farsældarráð Vesturlands

Samkvæmt 5. gr. laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021, skulu sveitarfélög skipa svæðisbundin farsældarráð. Ráðin eru samstarfsvettvangur svæðisbundinna þjónustuveitenda ríkis og sveitarfélaga og er ætlað að stuðla að samráði, samhæfingu og sameiginlegri forgangsröðun aðgerða í þágu farsældar barna. Farsældarráð Vesturlands vinnur að mótun fjögurra ára áætlunar um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða, byggða á stöðumati og helstu áskorunum á Vesturlandi. Jafnframt skal ráðið hafa samráð við börn, foreldra og aðra notendur þjónustunnar. Samkvæmt fyrirliggjandi drögum að skipulagi ráðsins eiga fulltrúar sveitarfélaga og svæðisbundinna þjónustuveitenda sæti í því og tilnefna aðildaraðilar bæði aðal- og varafulltrúa. Óskað er eftir að Velferðar- og mannréttindaráð tilnefni fulltrúa úr sínum röðum til setu í Farsældarráði Vesturlands.

Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir að tilnefna Jónínu Margréti Sigmundsdóttur sem fulltrúa ráðsins í Farsældarráði Vesturlands og  Bjarnheiði Hallsdóttur sem varafulltrúa. Ráðið leggur áherslu á mikilvægi svæðisbundins samstarfs og samhæfingar þjónustu ríkis og sveitarfélaga í þágu farsældar barna á Vesturlandi.

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu