Fara í efni  

Velferðar- og mannréttindaráð

268. fundur 19. maí 2026 kl. 08:00 - 09:15 í Lindinni Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Kristinn Hallur Sveinsson formaður
  • Líf Lárusdóttir aðalmaður
  • Aníta Eir Einarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Sveinborg Kristjánsdóttir deildarstjóri farsældarþjónustu fullorðinna
Fundargerð ritaði: Sveinborg L. Kristjánsdóttir deildarstjóri farsældarþjónustu fullorðinna

1.2604-3228 - Skammtímadvöl á Laugarbraut - Frumáætlun

Frumáætlun um uppbyggingu skammtímadvalar á lóðinni við Laugarbraut 6 liggur fyrir. Lárus Ársælsson umhverfisstjóri mætir á fundinn og kynnir frumáætlunina.

Velferðar- og mannréttindaráð leggur til að farið verði í frumhönnun. Ráðið leggur jafnframt til að verkefnahópurinn sem skilaði frumáætlun haldi áfram störfum við undirbúning frumhönnunar en fái jafnframt stuðning þvert á svið Akraneskaupstaðar. 

Málinu vísað til umfjöllunar í bæjarráði, skipulags- og umhverfisráði, mennta- og menningarráði og til kynningar í notendaráði um málefni fatlaðs fólks á Akranesi. 

 

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu