Fara í efni  

Velferðar- og mannréttindaráð

265. fundur 21. apríl 2026 kl. 15:00 - 17:00 í Lindinni Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Sigrún Ríkharðsdóttir varamaður
  • Ragnheiður Helgadóttir varamaður
  • Aníta Eir Einarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs
  • Sólveig Sigurðardóttir deildarstjóri farsældarþjónustu barna
Fundargerð ritaði: Sólveig Sigurðardóttir deildarstjóri farsældarþjónustu barna

1. 2604-3047 - Verklagsreglur um eftirlit með fósturheimilum

Lögð eru fram til samþykktar drög að verklagsreglum Barnaverndarþjónustu Akraneskaupstaðar um eftirlit með börnum í fóstri. Markmið reglnanna er að tryggja skipulegt, lögmætt og barnmiðað eftirlit með aðbúnaði, líðan og öryggi barna í fóstri, að ráðstöfun nái tilgangi sínum og að viðbrögð við áhyggjum séu skjót, skýr og skjalfest. Reglurnar gilda um eftirlit með öllum börnum sem Barnaverndarþjónusta Akraneskaupstaðar hefur ráðstafað í fóstur, óháð því hvar fósturheimili er staðsett. Þær taka til undirbúnings eftirlits, framkvæmdar heimsókna, samtals við barn, skráningar, faglegs mats, viðbragða við áhyggjum, samstarfs við aðra aðila og endurskoðunar fósturráðstöfunar þegar þess gerist þörf. Verklagsreglurnar byggja á barnaverndarlögum nr. 80/2002, reglugerð um fóstur nr. 804/2004 og lögum nr. 19/2013 um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins. Við framkvæmd þeirra skal jafnframt gæta ákvæða stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Eftir því sem við á skal einnig hafa hliðsjón af lögum nr. 86/2021 um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Reglurnar taka mið af réttindum barns, faglegum viðmiðum og þeirri meginreglu að hagsmunir barns skuli ávallt hafðir að leiðarljósi.

Velferðar- og mannréttindaráð telur mikilvægt að barnaverndarþjónusta Akraneskaupstaðar framfylgi eftirlitsskyldu sinni af fagmennsku gagnvart börnum sem ráðstafað er í fóstur. Ráðið samþykkir framlagðar verklagsreglur um eftirlit með fósturheimilum og telur þær styðja við samræmda, skýra og barnmiðaða framkvæmd eftirlits. Ráðið felur Barnaverndarþjónustu Akraneskaupstaðar að vinna eftir reglunum frá samþykktardegi og endurskoða þær eftir þörfum, þó eigi sjaldnar en annað hvert ár.

 

2. 2601-0902 - Samráðshópur stjórnenda í velferðarþjónustu á Vesturlandi 2024- 2026

Fundargerðir samráðshóps stjórnenda í velferðarþjónustu á Vesturlandi nr. 14, 15 og 16 lagðar fram til kynningar.

Lagt fram.

 

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu