Velferðar- og mannréttindaráð
|
1. 2601-1144 - Uppbygging skammtímadvalar á Akranesi Í kjölfar bókun bæjarstjórnar um uppbyggingu skammtímadvalar við Laugarbraut 6 hefur málið verið tekið fyrir á fundum velferðar- og mannréttindaráð, þann 2. febrúar sl., og skiplags- og umhverfisráðs, þann 16. febrúar sl., þar sem jákvætt er tekið undir uppbyggingu skammtímadvalar á Akranesi og stofnun starfshóps með viðeigandi hagsmunaaðila innanborðs. Velferðar- og mannréttindaráð tilnefnir sviðsstjóra velferðar- og mannréttindasviðs í starfshópinn og skipulags- og umhverfissvið tilnefnir Lárus Ársælsson. Velferðar- og mannréttindaráð óskar eftir að starfshópurinn skili drögum að tímalínu á fundi ráðsins 19. maí nk.
|
|
2. 2601-0726 - Akstursþjónusta Akraneskaupstaðar Áframhaldandi umræða um akstursþjónustu Akraneskaupstaðar frá síðasta fundi ráðsins. Minnisblað starfsmanna lagt fram. Velferðar- og mannréttindaráð hvetur til þess að útboðsleið verði skoðuð að nýju en jafnframt verði brugðist við þeim vanda sem snýr að bílaflota þjónustunnar.
|
|
3. 2604-2850 - Stefna í málefnum fatlaðs fólks Velferðar- og mannréttindaráð hefur haft á sinni stefnuskrá að unnin verði stefna í málefnum fatlaðs fólks. Önnur sveitarfélög á Vesturlandi hafa einnig hug á gerð slíkrar stefnu. Stjórnendur í velferðarþjónustu á Vesturlandi hafa rætt um hvort grundvöllur sé fyrir gerð sameiginlegrar stefnu í málefnum fatlaðs fólks á Vesturlandi, sem hvert sveitarfélag eða svæði myndi í framhaldinu taka áfram og staðfæra. Óskað er eftir afstöðu velferðar- og mannréttindaráðs til þeirrar nálgunar. Velferðar- og mannréttindaráð telur að stefna í málefnum fatlaðs fólks sé verkefni sem skynsamlegt væri að vinna í samvinnu við önnur sveitarfélög á Vesturlandi og sviðsstjóra falið umboð til áframhaldandi samtals.
|
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





