Fara í efni  

Velferðar- og mannréttindaráð

263. fundur 24. mars 2026 kl. 15:00 - 17:00 í Lindinni Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Kristinn Hallur Sveinsson formaður
  • Líf Lárusdóttir aðalmaður
  • Aníta Eir Einarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs
  • Sveinborg Kristjánsdóttir deildarstjóri farsældarþjónustu fullorðinna
Fundargerð ritaði: Sveinborg L. Kristjánsdóttir deildarstjóri farsældarþjónustu fullorðinna

1. 2601-0726 - Akstursþjónusta Akraneskaupstaðar 2024

Akstursþjónusta Akraneskaupstaðar - Staða málsins kynnt. Sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs og Valdís Eyjólfsdóttir framkvæmdastjóri Höfða fara yfir stöðu akstursþjónustunnar.

Velferðar- og mannréttindaráð þakkar Hildigunni Árnadóttur, sviðsstjóra velferðar- og mannréttindasviðs og Valdísi Eyjólfsdóttur, framkvæmdastjóra Höfða fyrir greinargott minnisblað og góða kynningu á málinu. Ráðið óskar eftir að málið komið inn að nýju fyrir næsta fund ráðsins.

 

2. 2601-0354 - Skógarlundur 42, stofnframlag vegna íbúðakjarna 2023

Staða málsins lögð fram til kynningar og umræðu. Steinar Adolfsson sviðsstjóri fjármála- og þjónustusviðs sat fundinn undir þessum lið.

Velferðar- og mannréttindaráð þakkar Steinari Degi Adolfssyni, sviðsstjóra fjármála- og þjónustusviðs fyrir góða yfirferð og óskar eftir að fá málið inn að nýju á næsta fund ráðsins.

 

4. 2601-0072 - Skammtímadvöl á Vesturlandi

Farið yfir stöðu málsins og aðkomu verktaka að undirbúningi gagna fyrir sveitarstjórnir á Vesturlandi.

Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrirliggjandi samning og vísar honum til afgreiðslu í bæjarráði.

 

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu