Velferðar- og mannréttindaráð
|
2602-1860 : Fjöliðjan - aukið rými á Smiðjuvöllum Beiðni um heimild til að taka á leigu viðbótarrými fyrir Fjöliðjuna m.a. vegna fjölda starfsmanna með fjölþættan vanda. Minnisblað yfirþroskaþjálfa lagt fram. Guðmundur Páll Jónsson og Ásta Pála Harðardóttir sitja fundinn undir þessum lið. Velferðar- og mannréttindaráð tekur jákvætt í erindið og vísar því áfram til umfjöllunar í bæjarráði.
|
|
2602-1607 : Tímabundinn samningur um akstur með heimsendan mat 01.03.2026 - 28.02.2027 Beiðni um heimild til að framlengja samning við verktaka varðandi heimsendan mat. Velferðar- og mannréttindaráð vísar málinu til afgreiðslu í bæjarráði. |
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





