Fara í efni  

Velferðar- og mannréttindaráð

261. fundur 17. febrúar 2026 kl. 15:00 - 17:00 í Lindinni
Nefndarmenn
  • Kristinn Hallur Sveinsson formaður
  • Líf Lárusdóttir aðalamaður
  • Aníta Eir Einarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs
  • Sveinborg Kristjánsdóttir deildarstjóri farsældarþjónustu fullorðinna
Fundargerð ritaði: Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs

1. 2602-1375 - Gott að eldast, aðgerðaráætlun um þjónustu við fólk með heilabilun

Verktakasamningur við aðila sem sinnt hefur þjónustu við fólk með heilabilun og aðstandendur þeirra rennur út 28.02.26. Óskað er eftir heimild til að framlengja samninginn út árið 2026. Heildarkostnaður fyrir árið 2026 verður að hámarki 2.880.000 kr.

Velferðar- og mannréttindaráð telur mikilvægt að standa vörð um þessa þjónustu við fólk með heilabilun og mælir með áframhaldandi fjárveitingu til verkefnisins.Málinu vísað til afgreiðslu í bæjarráði ásamt viðauka.

2. 2601-0902 - Samráðshópur stjórnenda í velferðarþjónustu á Vesturlandi 2024- 2025

Fundargerðir samráðshóps stjórnenda í velferðarþjónustu á Vesturlandi 2024-2025 lagðar fram til kynningar.

Lagt fram.

3. 2601-0831 - Íþróttamiðstöðin Jaðarsbökkum - endurbætur á aðstöðu

Forstöðumaður íþróttamannvirkja hefur óskað eftir að skoðaðir verði möguleikar á endurbótum í sameiginlegum rýmum íþróttamiðstöðvarinnar á Jaðarsbökkum s.s. búningsklefum, afgreiðslu og aðgengi að sundlaug í kjölfar fjölgunar gesta á svæðinu. Lagt er til að gerðar verði útbætur á aðgengi fyrir fatlaða við endurbætur á sameiginlegum rýmum og þá sér í lagi búningsklefum í vallarhúsi. Málið hefur nú þegar verið tekið til sameiginlegrar umfjöllunar hjá mennta- og menningarráði og skipulags- og umhverfisráði sem veittu starfsfólki sviðanna umboð til að framkvæma kostnaðarmat og mótun frekari breytingatillagna.

Velferðar- og mannréttindaráð styður við áætlanir um að starfsfólk mennta- og menningarsviðs og skipulags- og umhverfissviðs framkvæmi kostnaðarmat og móti frekari breytingartillögur. Ráðið telur mikilvægt að starfsfólk velferðar- mannréttindasviðs fái tækifæri til að koma sjónarmiðum notenda þjónustunnar á framfæri í vinnuferlinu.

4. 2601-0072 - Framhaldsmál - Skammtímadvöl á Vesturlandi

Farið yfir stöðu málsins.

Lagt fram.

5. 2602-1607 : Tímabundinn samningur um akstur með heimsendan mat 01.03.2026 - 28.02.2027

Tímabundinn samningur um akstur með heimsendan mat rennur út 28. febrúar 2026. Óskað er eftir heimild til að framlengja samninginn til eins árs eða út febrúar 2027.

Velferðar- og mannréttindaráð frestar afgreiðslu málsins og felur starfsmönnum sviðsins að funda með þjónustuaðilum og leggja málið fram að nýju.

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu