Velferðar- og mannréttindaráð
1. 2601-1118 - Endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð á Akranesi - febrúar 2026
Drög að endurskoðuðum reglum um fjárhagsaðstoð á Akranesi.
Hrefna Rún Ákadóttir yfirfélagsráðgjafi sat fundinn undir þessum lið og kynnti fyrirhugaðar
breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð á Akranesi. Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir drög
að endurskoðuðum reglum um fjárhagsaðstoð á Akranesi. Málinu er vísað til afgreiðslu í bæjarráði.
2. 2601-1144 - Uppbygging skammtímadvalar á Akranesi
Á fundi bæjarstjórnar þann 27. janúar sl. var uppbygging skammtímadvalar til umræðu. Var
samþykkt tillaga þess efnis að gert verði mat á þörf fyrir skammtímavistunarúrræði til að geta
metið hverskonar úrræði og form þarf og hvaða möguleikar eru á samnýtingu á öðrum úrræðum
fyrir þjónustu við fatlaða. Í framhaldinu verði skoðað hvernig húsnæði þarf til að mæta
þjónustuþörfunum. Sá hluti lóðarinnar við Laugarbraut 6, þar sem nú stendur fyrrum áhaldahús
bæjarins, verði tekinn frá til hugsanlegrar uppbyggingar á skammtímadvöl fyrir fötluð börn og
ungmenni. Ráðist verði í kostnaðargreiningu svo unnt sé að áætla heildarkostnað verkefnisins og
leggja fram raunhæfa áætlun. Því næst verði hafist handa við skipulags- og hönnunarvinnu á
svæðinu með það að markmiði að nálægð við aðra þjónustu, s.s. Bjarnalaug og búsetukjarnann við
Laugarbraut, nýtist sem best. Var málinu vísað til velferðar- og mannréttindaráðs til úrvinnslu og
eftirfylgni.
Velferðar- og mannréttindaráð lýsir ánægju sinni yfir ákvörðun bæjarstjórnar um uppbyggingu
skammtímadvalar á Akranesi. Ráðið hefur um langt skeið fjallað um nauðsyn slíks úrræðis og m.a.
fengið kynningar, farið og skoðað skammtímadvalir og látið framkvæma þarfagreiningar.
Velferðar- og mannréttindaráð leggur til að stofnaður verði verkefnahópur þvert á svið
Akraneskaupstaðar til að vinna heildræna áætlun um uppbyggingu skammtímadvalar við
Laugarbraut 6. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram. Málinu vísað til umfjöllunar í Skipulags- og
umhverfisráði og til kynningar í notendaráði.
3. 2601-1147 - Samræmdar greiðslu til stuðningsfjölskyldna á Vesturlandi
Samráðshópur stjórnenda í velferðarþjónustu á Vesturlandi tilnefndi árið 2025 í hóp fagaðila, frá
hverju sveitarfélagi, til að yfirfara greiðslur til stuðningsfjölskyldna á svæðinu og leggja fram tillögu
að samræmdri gjaldskrá. Verkefnahópurinn fundaði í átta skipti tímabilið október - desember
2025 og hefur nú lagt fram tillögu að samræmdri gjaldskrá sem lögð er fram til kynningar og
umræðu.
Velferðar- og mannréttindaráð þakkar verkefnahópnum fyrir vel unnin störf. Ráðið samþykkir nýja
samræmda gjaldskrá til stuðningsfjölskyldna á Vesturlandi og vísar málinu til afgreiðslu í
bæjarráði.
4. 2601-1130 - Samfélagsmiðstöðin Dalbraut 8 - uppbygging- framkvæmd verkefnisins
Eftirfylgd málsins í velferðar- og mannréttindaráði.
Velferðar- og mannréttindaráð fagnar því að verkefnið er á fjárhagsáætlun 2026 og óskar eftir
upplýsingum um stöðu útboðsgagna samfélagsmiðstöðvar frá skipulags- og umhverfisráði.
Velferðar- og mannréttindaráð telur mikilvægt að útboð fari fram sem fyrst.
5. 2601-0722 - Tónlistarnám fyrir fullorðið fatlað fólk
Þann 29. janúar sl. samþykkti bæjarráð að veita fjármagn til Tónlistarskóla Akraness vegna
tilraunaverkefnis um að þróa tónlistarkennslu fyrir fullorðið fatlað fólk, að fjárhæð kr. 600.000.
Ákvörðun varðandi haustönn 2026 þarf að liggja fyrir með vorinu og erindi þess efnis þá að berast
bæjarráði.
Velferðar- og mannréttindaráð fagnar ákvörðun bæjarráðs og vísar málinu til kynningar í
notendaráði.
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





