Velferðar- og mannréttindaráð
1. 2601-0726 - Akstursþjónusta Akraneskaupstaðar
Akstursþjónusta Akraneskaupstaðar til umræðu.
Velferðar- og mannréttindaráð harmar þau mistök sem urðu við birtingu gagna í kjölfar fundar
ráðsins þann 16. desember sl. Var afsökunarbeiðni komið á framfæri á fundi bæjarstjórnar þann
15. janúar til hlutaðeigandi aðila sl. sem og á fundi með útboðsaðila þann 19. desember sl. og er sú
afsökunarbeiðni hér með áréttuð. Velferðar- og mannréttindaráð metur, með vísan til 2.10 greinar
útboðsskilmála, að fyrirliggjandi tilboð í útboðinu sé óaðgengilegt þar sem bjóðandi bauð hærra
verð en fjárheimildir kaupanda gerðu ráð fyrir. Á grundvelli þessa mats er tilboði í verkið hafnað.
Ráðið felur sviðsstjóra og framkvæmdastjóra Höfða áframhaldandi vinnslu málsins.
Fulltrúar bæjarráðs, Valgarður Lyngdal Jónsson, Líf Lárusdóttir og Ragnar B. Sæmundsson, auk
framkvæmdastjóra Höfða hjúkrunarheimilis, Valdís Eyjólfsdóttir, sátu fundinn undir þessum lið.
2. 2601-0744 - Farsældarráð Vesturlands
Sveitarfélögum ber, samkvæmt lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr.
86/22, að skipa svæðisbundið farsældarráð. Svæðisbundin farsældarráð barna er vettvangur þar
sem svæðisbundnir þjónustuveitendur ríkis og sveitarfélaga hafa samráð og vinna áætlun um
svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna. Skipað hefur verið í Farsældarráð
Vesturlands. Fyrsti fundur Farsældarráðs Vesturlands verður haldinn fimmtudaginn 22. janúar nk.
kl.13:00 að Garðavöllum á Akranesi og dagskrá liggur fyrir.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt





