Fara í efni  

Velferðar- og mannréttindaráð

258. fundur 13. janúar 2026 kl. 15:00 - 16:45 í Lindinni Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Kristinn Hallur Sveinsson formaður
  • Einar Brandsson varaformaður
  • Aníta Eir Einarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs
Fundargerð ritaði: Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs

1. 2601-0476 Gott að eldast - samráð og útfærsla samþættingar á Akranesi
Kynning á upplýsingabæklingi velferðar- og mannréttindarsviðs, fyrir eldra fólk sem hefur það að
markmiði að tryggja aðgengi að upplýsingum að fjölbreyttri virkni og stuðningi á Akranesi á einum
stað.
Velferðar- og mannréttindaráð fagnar fyrirhugaðri útgáfu bæklings fyrir eldra fólk á Akranesi.

2. 2601-0482 - Tilboð til Höfða um rekstur samþættrar þjónustu við eldra fólk
Eins og áður hefur verið kynnt sóttu öll sveitarfélög á Vesturlandi, ásamt Heilbrigðisstofnun
Vesturlands, um þátttöku í verkefninu "Gott að eldast" og var aðildin samþykkt. Frá 2024 - 2025
var starfræktur vinnuhópur þvert á stofnanir (Akraneskaupstaður, HVE og Höfði) undir handleiðslu
verkefnastjóra hjá SSV. Niðurstaða þeirrar vinnu var að óska formlega eftir því að samþættri
þjónustu við eldra fólk yrði stýrt frá hjúkrunarheimilinu Höfða. Tilboð þess efnis til Höfða er lagt
fram til kynningar.
Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir að tilboð þetta verði sent til umfjöllunar í stjórn
Höfða.Málinu vísað til málsmeðferðar bæjarráðs.

3. 2601-0487 - Jafnaðartaxti vegna skammtímaveikinda - NPA miðstöðin
Sambandið vakti athygli á því að NPA miðstöðin hefur bætt við útreikning á jafnaðartaxta, 7%
veikindaálagi. Sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og Akureyrarbær hafa sent bókun eða bréf til
NPA miðstöðvarinnar um að þau muni ekki verða við þessari hækkun.
Velferðar- og mannréttindaráð tekur undir bókun sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi
7% hækkun á jafnaðartaxta NPA miðstöðvarinnar vegna veikindaálags.
Í handbók félagsmálaráðuneytisins um NPA (2019), kafla 2.2., kemur fram að framlag til
launakostnaðar skuli nægja til að standa undir launum, launatengdum gjöldum og svigrúmi til
tilfallandi veikinda og þjálfunar nýrra starfsmanna. Velferðar- og mannréttindaráð telur, í samræmi
við úrskurð úrskurðarnefndar velferðarmála nr. 542/2024, að núverandi jafnaðartaxtar, sem
byggja á gildandi kjarasamningum, uppfylli þessa skyldu. Að framangreindu virtu hafnar velferðarog mannréttindaráð tillögðum breytingum á jafnaðartaxta vegna skammtímaveikinda.
2/2

4. 2601-0286 - 27. fundur notendaráðs
Fundargerð notendaráðs frá 7. janúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu