Fara í efni  

Velferðar- og mannréttindaráð

226. fundur 04. júní 2024 kl. 15:15 - 19:00 í Lindinni Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Kristinn Hallur Sveinsson formaður
  • Einar Brandsson varaformaður
  • Aníta Eir Einarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs
  • Sveinborg Kristjánsdóttir deildarstjóri farsældarþjónustu fullorðinna
Fundargerð ritaði: Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs
Dagskrá

1.Fundargerðir 2024 - notendaráð um málefni fatlaðs fólks

2402092

20. fundargerð notendaráðs um málefni fatlaðs fólks frá 14. maí 2024.
Lagt fram.

2.925. mál - Frumvarp til laga um lögræðislög (nauðungarvistanir, yfirlögráðendur o.fl.) Frestur til og með 27.maí nk.

2405155

Frumvarp til laga um breytingar á lögræðislögum, nr. 71/1997 með síðari breytingum á lögræðislögum, nr. 84/2015. Hefur frá gildistöku laga nr. 84/2015 komið fram nokkur gagnrýni á gildandi lögræðislög og er tilefni lagasetningar að bregðast við þeirri gagnrýni og koma til móts við ábendingar um atriði sem talið er að betur megi fara í lögunum. Miða breytingarnar að því að tryggja betur réttarstöðu þess viðkvæma hóps sem lögin taka til.
Lagt fram til kynningar.

3.Hvítbók í málefnum innflytjenda - Boð um þáttöku í samráði

2405294

Í hvítbók um málefni innflytjenda er að finna fyrstu drög að stefnu í málefnum innflytjenda hér á landi. Þar er í fyrsta sinn varpað fram framtíðarsýn stjórnvalda og meginmarkmið sett fram til næstu fimmtán ára. Stefnan er unnin í breiðu samráði við haghafa og almenning með sérstakri áherslu á aðkomu innflytjenda sjálfra.



Stefnunni er ætlað að vera leiðarljós til framtíðar og styrkja grundvöll ákvarðana um þau málefni sem snerta líf og velferð innflytjenda hér á landi. Hún leggur grunn að samábyrgð samfélagsins, jafnt innlendra sem innflytjenda, á mótun inngildandi samfélags. Hyggst ráðherra leggja fram tillögu til þingsályktunar, ásamt framkvæmdaáætlun, á haustþingi.
Lagt fram til kynningar.

4.Lög um breytingu á lögum um húsnæðisbætur nr. 752016

24052252

Alþingi samþykkti í maí 2024 lagafrumvarp um breytingar á lögum um húsnæðisbætur. Markmið laganna er að styðja við nýgerða kjarasamninga til fjögurra ára á almennum vinnumarkaði með því að hækka húsnæðisbætur og auka þannig ráðstöfunartekjur heimilanna og draga úr íþyngjandi húsnæðiskostnaði leigjenda.



Við breytingarnar verður annars vegar tekið aukið tillit til fjölda heimilisfólks við útreikning húsnæðisbóta. Þannig munu grunnfjárhæðir og frítekjumörk vegna húsnæðisbóta taka til allt að sex heimilismanna í stað fjögurra áður. Tveir flokkar grunnfjárhæða húsnæðisstuðnings bætast við vegna fimm eða sex heimilismanna og þá hækka einnig frítekjumörk vegna heimila þar sem fimm eða sex búa.



Hins vegar hækkar grunnfjárhæð húsnæðisbóta til einstaklingsheimila um 25% frá því sem nú gildir. Aðrar grunnfjárhæðir hækka til samræmis. Skerðingarmörk vegna eigna hækka einnig í 12,5 m.kr. en þau eru 8 m.kr. í dag. Þannig munu húsnæðisbætur ekki falla niður fyrr en samanlagðar heildareignir heimilis ná 20 m.kr.
Velferðar- og mannréttindaráð felur starfsmönnum sviðsins að skoða fjárhagslega þýðingu hækkunar á þaki sérstaks húsnæðisstuðnings hjá Akraneskaupstað í samráði við fjármálastjóra og leggja fram tillögu um breytingu á þaki sérstaks húsnæðisstuðnings.

Fundi slitið - kl. 19:00.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00