Fara í efni  

Stýrihópur um stefnumótun Akraneskaupstaðar

12. fundur 19. október 2023 kl. 16:15 - 18:00 í Miðjunni, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Sædís Alexía Sigurmundsdóttir formaður
  • Líf Lárusdóttir aðalmaður
  • Valgarður L. Jónsson aðalmaður
  • Valdís Eyjólfsdóttir verkefnastjóri
  • Dagný Hauksdóttir sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs
  • Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
  • Steinar Dagur Adolfsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs
  • Haraldur Benediktsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Valdís Eyjólfsdóttir verkefnastjóri
Dagskrá

1.Stefnumótun Akraneskaupstaðar

2209259

Yfirferð á innleiðingaráætlun heildarstefnunnar.
Farið var yfir innleiðingaráætlunina sem gerð var í júní 2023 og hún uppfærð miðað við ábendingar sem komið hafa síðan þá við framkvæmdina. Í uppfærðri innleiðingaráætlun er kveðið á um opinn starfsmannafund í nóvember n.k. þar sem stefnan er kynnt betur og starfsmenn fara í hugmyndavinnu um hvaða aðgerðir þarf að ráðast í til að innleiða stefnuna og hver er forgangur þeirra verkefna. Efni fundarins verður notað til að bæta heildarstefnuna og núverandi aðgerðaáætlun.
Í uppfærðri innleiðingaráætlun er stefnt að því að loka eintak heildarstefnunnar verði til samþykktar á bæjarstjórnarfundi í desember 2023.
Samþykkt var að leita til Sahara um gerð kynningarefnis, en leitað hafði verið til þriggja auglýsingastofa um tilboð í verkefnið.

Fundi slitið - kl. 18:00.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00