Fara í efni  

Stjórn Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis

19. fundur 30. desember 2012 kl. 17:30 - 18:30

Fundinn sátu:
Kristján Sveinsson formaður
Kjartan Kjartansson varaformaður
Guðrún M.Jónsdóttir
Margrét Magnúsdóttir
Hjördís Guðmundsdóttir fulltrúi starfsmanna
Guðjón Guðmundsson framkvæmdastjóri

Fyrir var tekið:

1) Vistunarmál
Samþykkt var vistun fyrir Unu Jónmundsdóttur, Furugrund 22,  Sigríði Sigurbjörnsdóttur, Stekkjarholti 24 og Jónínu B.Halldórsdóttur, Hjarðarholti 1.

2) Fundargerð framkvæmdanefndar, dags. 11.des.
Lögð fram

3) Staða framkvæmda
Farið yfir stöðu mála við endurbætur á hjúkrunargangi.

4) Lántaka vegna nýrrar hjúkrunarálmu og endurbóta á hjúkrunargangi
Stjórn HÖFÐA hjúkrunar- og dvalarheimilis samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 110.000.000 kr. í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Er lánið tekið til að fjármagna byggingu nýrrar hjúkrunarálmu og breytingu á tvíbýlum í einbýli sem fellur undir lánshæf verkefni, sbr. 3.gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er Guðjóni Guðmundssyni, kt. 291042-4309, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. HÖFÐA hjúkrunar- og dvalarheimilis að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántöku þessari.
Til tryggingar skilvísri og skaðlausri greiðslu láns þessa, ásamt vöxtum og kostnaði standa einfaldar óskiptar ábyrgðir allra eigenda sem eru Akraneskaupstaður og Hvalfjarðarsveit sbr. heimild í 2.mgr. 68 gr. sömu laga.

5) Lífeyrisskuldbindingar
Framkvæmdastjóri greindi frá stöðu mála í viðræðum SFV og ríkisins varðandi uppgjör lífeyrisskuldbindinga öldrunarstofnana.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00