Fara í efni  

Stjórn Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis

169. fundur 30. mars 2026 kl. 16:30 - 18:41 Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili
Nefndarmenn
  • Einar Brandsson formaður
  • Björn Guðmundsson varaformaður
  • Liv Aase Skarstad varamaður
  • Helgi Pétur Ottesen aðalmaður
  • Bragi Benteinsson fulltrúi starfsfólks
Starfsmenn
  • Valdís Eyjólfsdóttir framkvæmdastjóri
  • Þorbjörg Sigurðardóttir hjúkrunarforstjóri
Fundargerð ritaði: Valdís Eyjólfsdóttir framkvæmdastjóri

1. Ársreikningur 2025
Jóhann Þórðarson frá Endurskoðnarstofunni Álit ehf. fór yfir ársreikninginn ásamt framkvæmdastjóra.
Samkvæmt ársreikningi námu rekstrartekjur Höfða 1.693,5 m.kr. og rekstrargjöld án fjármagnsliða og afskrifta námu 1.776,9 m.kr. Afskriftir námu 29,7 m.kr. og fjármagnsliðir nettó 21,2 m.kr. Gjaldfærsla vegna meiriháttar viðhalds fasteignar nam 35,5 m.kr. og tekjufærsla á móti upp á 18,5 m.kr. Önnur gjaldfærsla undir öðrum liðum nam 0,5 m.kr. Rekstrarafkoma ársins er neikvæð um 109,3 m.kr.
Handbært fé hækkar um 117,7 m.kr. og nam 215,6 m.kr. í árslok 2025.
Stjórn og framkvæmdastjóri staðfesta ársreikninginn með undirskrift sinni.

 

2. Endurskoðunarskýrsla 2025
Jóhann Þórðarson frá Endurskoðnarstofunni Álit ehf. fór yfir skýrsluna. Stjórn þakkar Jóhanni fyrir yfirferð á skýrslunni.
Lögð fram.

 

3. Vistunarmál
Staðfest vistun fyrir1 einstakling, sjá trúnaðarbók.

Staða á biðlistum 26.03.2026:
Hjúkrunarrými: 59 einstaklingar.
Hvíldarinnlagnir: 52 einstaklingar.

 

4. Niðurstöðuskýrsla viðhaldsúttektar og launagreiningar jafnlaunakerfis
Lögð fram.

 

5. Staða samningaviðræðna við Sjúkratryggingar Íslands vegna þjónustusamnings
Framkvæmdastjóri fer yfir stöðuna í samningaviðræðunum.

 

6. Erindisbréf MÓMA teymis
Lagt fram.

 

7. Sérhæfð dagdvalarrými
Framkvæmdastjóri og formaður stjórnar Höfða fara yfir fundi og tölvupóstsamskipti sem hafa verið við Félags- og húsnæðismálaráðuneytið vegna beiðni um fjölgun sérhæfðra dagdvalarrýma.

 

8. Framtíð akstursþjónustu
Framkvæmdastjóri fór yfirminnisblað um framtíð akstursþjónustu hjá Höfða og Akraneskaupstað sem unnið var með sviðsstjóra Velferðar- og mannréttindasviði Akraneskaupstaðar og var lagt fram á síðasta fundi Velferðar- og mannréttindaráðs þann 24. mars 2026.

 

9. Fundargerðir undirbúningsnefndar um stækkun Höfða dags. 25.feb.2026 og 26.mar.2026
Lagt fram.

 

10. Mannauðsmál
Staða hjúkrunarforstjóra.
Samþykkt að framlengja samning við Þorbjörgu Sigurðardóttur, starfandi hjúkrunarforstjóra, um eitt ár, eða til 31. maí 2027.

 

11. Næsti fundur stjórnar
Næsti stjórnarfundur verður mánudaginn 27. apríl 2026.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:41.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu