Stjórn Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis
1. Vistunarmál
Staðfest vistun fyrir1 einstakling, sjá trúnaðarbók.
Staða á biðlistum 21.04.2026:
Hjúkrunarrými: 59 einstaklingar.
Hvíldarinnlagnir:54 einstaklingar.
2. Rekstraryfirlit 1. janúar 2026 til 31. mars 2026
Framkvæmdastjóri fór yfir framlag rekstraryfirlit fyrir tímabilið janúar til mars 2026.
3. Aðalfundur Höfða 2026
Stjórn samþykkir að aðalfundur Höfða verði haldinn í Höfðasal mánudaginn 4. maí 2026 kl. 16:30.
4. Launa- og mannauðskerfið Kjarni
Framkvæmdastjóri fór yfir fyrirhugaða innleiðingu á launa- og mannauðskerfinu Kjarna samhliða innleiðingu hjá Akraneskaupstað.
Stjórn felur framkvæmdastjóra að fá upplýsingar um áætlaðan einskiptis kostnað við innleiðinguna og mánaðarlegan/árlegan rekstrarkostnað í framhaldi innleiðingar.
5. Staða samningaviðræðna við Sjúkratryggingar Íslands vegna þjónustusamnings
Framkvæmdastjóri fór yfir stöðuna í samningaviðræðunum.
6. Mannauðsmál
a. Beiðni um launalaust leyfi, sjá trúnaðarbók.
Stjórn samþykkir beiðnina.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:14.





