Fara í efni  

Stjórn Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis

170. fundur 16. apríl 2026 kl. 15:30 - 16:10 Á Teams
Nefndarmenn
  • Einar Brandsson formaður
  • Björn Guðmundsson varaformaður
  • Elsa Lára Arnardóttir aðalmaður
  • Helgi Pétur Ottesen aðalmaður
  • Bragi Benteinsson fulltrúi starfsfólks
Starfsmenn
  • Valdís Eyjólfsdóttir framkvæmdastjóri
  • Þorbjörg Sigurðardóttir hjúkrunarforstjóri
Fundargerð ritaði: Valdís Eyjólfsdóttir framkvæmdastjóri

1. Stækkun Höfða
Fundargerð Undirbúningsnefndar um stækkun Höfða frá 13. apríl 2026 lögð fram.
Framkvæmdastjóri fór yfir samantekt á vinnu nefndarinnarallt frá stofnun hennar í lok árs 2024.Nefndin skilar nú til stjórnar Höfða eftirfarandi tillögum um málið:

1. Viðbygging vegna stækkunar hjúkrunarheimilisins Höfða verður staðsett sunnan við núverandi húsnæði, þ.e. fyrir aftan hús. Sú staðsetning er talin samrýmast best niðurstöðum frumathugunar, rekstrarlegum sjónarmiðum og öðrum forsendum verkefnisins.

2. Farin verður leiguleið við uppbyggingu nýs húsnæðis fyrir allt að 60 hjúkrunarrými. Leiguleiðin felur í sér að ríkið stendur að útboði og uppbyggingu húsnæðisins, selur húsnæðið og gerirsamhliða leigusamning um húsnæðið við kaupanda, ásamt því að gera samning við Höfða um rekstur hjúkrunaheimilis í húsnæðinu.Með leiguleiðinni ber Höfði ekki fjárhagslega áhættu af uppbyggingu húsnæðisins né vegna leigugreiðslna.

Stjórn samþykkir tillögur nefndarinnar.

Farið var yfir drög að samkomulagifrá Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu um breytt fyrirkomulag vegna stækkunar á Höfða hjúkrunar- og dvalarheimili, þar sem ráðuneytið og eigendur Höfða lýsa yfir vilja til að stækka Höfða um allt að 60 rými. Framkvæmdastjóra falið að ganga frá endanlegri útfærslu samkomulagsins í samvinnu við eigendur Höfða.

 

2. Næsti fundur stjórnar
Dagsetning næsta stjórnarfundar er óbreytt, þ.e. mánudaginn 27. apríl 2026.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:10.

 

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu