Stjórn Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis
1. Vistunarmál
Staðfest vistun fyrir 2 einstaklinga, sjá trúnaðarbók.
Staða á biðlistum 25.02.2026:
Hjúkrunarrými: 56 einstaklingar.
Hvíldarinnlagnir: 50 einstaklingar.
2. Mannauðsmál
a. Tvær beiðnir um launalaust leyfi. Stjórn samþykkir báðar beiðnirnar. Fært í trúnaðarbók.
b. Ólína Ingibjörg Gunnarsdóttir, sem hefur verið í launalausu leyfi frá 1. júní 2025, hefur sagt starfi sínu lausu sem hjúkrunarforstjóri á Höfða. Stjórn Höfða þakkar Ólínu Ingibjörgu fyrir hennar störf fyrir heimilið og óskar henni velfarnaðar í nýju starfi.
c. Umsjónarmaður fasteigna hefur sagt starfi sínu lausu. Stjórn Höfða þakkar Sigurði Jóhanni Haukssyni fyrir hans störf fyrir heimilið og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi. Framkvæmdastjóri fer yfir tillögur að nokkrum breytingum á starfi umsjónarmanns fasteigna við þessi tímamót. Stjórn felur framkvæmdastjóra að auglýsa starfið skv. umræðum á fundi.
3. Akstursþjónustan
Framkvæmdastjóri fór yfir tillögur að breytingum á akstursþjónustu Höfða. Stjórn felur framkvæmdastjóra að vinna málið áfram.
4. Launagreining
Framkvæmdastjóri fór yfir þróun launakostnaðar milli mánaða síðustu ár.
5. Tímalína endurskoðunar og uppgjörs vegna ársins 2025
Framkvæmdastjóri kynnti breytingar á tímalínu vegna vinnu við uppgjör og endurskoðun í tengslum við ársreikning 2025. Stefnt er á fund í lok mars til að afgreiða ársreikning 2025.
6. Fundargerðir undirbúningsnefndar um stækkun Höfða
Lögð fram fundargerð nefndarinnar nr. 6 frá 12. febrúar 2026.
7. Næsti fundur stjórnar
Næsti stjórnarfundur verður mánudaginn 30.mars 2026.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:21.





