Fara í efni  

Stjórn Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis

141. fundur 23. október 2023 kl. 16:30 - 18:10 Höfði hjukrunar- og dvalarheimili
Nefndarmenn
  • Einar Brandsson formaður
  • Björn Guðmundsson varaformaður
  • Elsa Lára Arnardóttir
  • Helgi Pétur Ottesen
  • Aldís Þorbjörnsdóttir fulltrúi starfsmanna
Starfsmenn
  • Ólína Ingibjörg Gunnarsdóttir hjúkrunarforstjóri
  • Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri
Fundargerð ritaði: Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri
1. Vistunarmál
Staðfest vistun fyrir einn einstakling, sjá trúnaðarbók.
Staða á biðlistum 18.10.2023:
Hjúkrunarrými: 39 einstaklingar.
Dvalarrými: 7 einstaklingar (dvalarrými ekki lengur í rekstri á Höfða).
Hvíldarinnlagnir: 40 einstaklingar.
 
2. Fjárhagsáætlun 2024
Samkvæmt framlagðri áætlun fyrir árið 2024 er gert ráð fyrir að rekstrartekjur Höfða nemi 1.654,4 mkr. og rekstrargjöld án fjármagnsliða og afskrifta nema 1.574,4 mkr. Afskriftir nema 32,4 mkr. og fjármagnsliðir nema nettó 46,5 mkr. Aðrir liðir nema 94,7 mkr. Hagnaður af rekstri án annara liða nemi 1 mkr. en með öðrum liðum nemi tap 93,7 mkr. Handbært fé til rekstrar nemi 65,7 mkr. og fjármögnunarhreyfingar nemi nettó 198 mkr. Hækkun á handbæru fé nemi 132,2 mkr. og að handbært fé í árslok verði 227,8 mkr.
Lögð fram til fyrri umræðu ásamt greinargerð framkvæmdastjóra.
 
3. Fjárhagsáætlun 2025-2027
Lögð fram til fyrri umræðu.
 
4. Gjaldskrá Höfða
Stjórn Höfða samþykkir framlagðar tillögur framkvæmdastjóra um nýja gjaldskrá:
a) Verð á útseldu fæði frá Höfða vegna heimsendingar á matarbökkum, Dalbraut 4 (eldri borgarar) og til kostgangara. Verð pr. máltíð hækkar úr kr. 1.274 í kr. 1.443.
b) Gjald á útseldu fæði til starfsmanna Akraneskaupstaðar hækkar úr kr. 1.750 í kr. 1.982 pr.máltíð.
Hækkanir taka gildi frá og með 1. janúar 2024.
Jafnframt samþykkir stjórn Höfða breytingu á gjaldskrá vegna útleigu á Höfðasal:
 
Leiga um helgar og á rauðum dögum:                var           verður     breyting
án eldhúsaðgangs og aðstoðarmanneskju        30.000    41.000    11.000
með eldhúsaðgangi og aðstoðarmanneskju      50.000    68.000    18.000
Leiga á virkum dögum: 
án eldhúsaðgangs og aðstoðarmanneskju         20.000    27.000     7.000
með eldhúsaðgangi og aðstoðarmanneskju       40.000    55.000    15.000     
                                      
Núverandi gjaldskrá hefur ekki tekið breytingum frá 1.1.2017.
Hækkanir taka gildi frá og með 1. janúar 2024.
Auk þess samþykkir stjórn framlagða tillögu um endurskoðun á leigusamningum vegna aðstöðu á Höfða.
 
5. Fundargerðir framkvæmdanefndar, dags. 4.9. og 18.9.23
Lagðar fram.
 
6. Önnur mál
Starfsmannamál
a) Beiðni um launalaust leyfi sjá trúnaðarbók
Stjórn Höfða samþykkir beiðnina.
b) Trúnaðarmál
Afgreiðsla trúnaðarmál.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:10
   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00