Fara í efni  

Stjórn Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis

134. fundur 24. október 2022 kl. 16:30 - 17:23 Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili
Nefndarmenn
  • Einar Brandsson formaður
  • Björn Guðmundsson varaformaður
  • Elsa Lára Arnardóttir
  • Helgi Pétur Ottesen
  • Aldís Þorbjörnsdóttir fulltrúi starfsmanna
Starfsmenn
  • Ólína Ingibjörg Gunnarsdóttir hjúkrunarforstjóri
  • Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri
Fundargerð ritaði: Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri

1. Endurnýjun á þak- og útveggjaklæðningu í 2. áfanga Höfða
Lögð fram kostnaðaráætlun og yfirlitsteikningar hönnuða vegna endurnýjunar á þak- og útveggjaklæðningar í 2. og 1. áfanga Höfða.
Samþykkt að gera ráð fyrir framkvæmdunum í fjárhagsáætlun 2023 og 2024.

2. Fjárhagsáætlun 2023
Samkvæmt framlagðri áætlun fyrir árið 2023 er gert ráð fyrir að rekstrartekjur Höfða nemi 1.379,9 mkr. og rekstrargjöld án fjármagnsliða og afskrifta nema 1.363,5 mkr. Afskriftir nema 29,5 mkr. og fjármagnsliðir nema nettó 26,3 mkr. Óreglulegir liðir nema 74,3 mkr. Tap af rekstri án óreglulegra liða nemi 39,4 mkr. en með óreglulegum liðum nemi tapið 113,7 mkr. Handbært fé til rekstrar nemi 67,5 mkr., fjárfestingahreyfingar nemi nettó 116,1 mkr. og fjármögnunarhreyfingar nemi nettó 263,8 mkr. Hækkun á handbæru fé nemi 135,2 mkr. og að handbært fé í árslok verði 215,3 mkr.
Lögð fram til fyrri umræðu ásamt greinargerð framkvæmdastjóra.

3. Fjárhagsáætlun 2024-2026
Lögð fram til fyrri umræðu.

Fleira ekki gert.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00