Fara í efni  

Stjórn Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis

122. fundur 18. október 2021 kl. 16:30 - 17:30 Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili
Nefndarmenn
  • Einar Brandsson varaformaður
  • Björn Guðmundsson
  • Helgi Pétur Ottesen
  • Í gegnum fjarfundarbúnað:
  • Elsa Lára Arnardóttir formaður
Starfsmenn
  • Guðmunda Maríasdóttir fulltrúi starfsmanna
  • Ólína Ingibjörg Gunnarsdóttir hjúkrunarforstjóri
  • Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri
Fundargerð ritaði: Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri

1.  Vistunarmál
Samþykkt vistun fyrir fjóra einstaklinga, sjá trúnaðarbók.
Staða á biðlistum 14.10.2021:
Hjúkrunarrými: 29 einstaklingar.
Dvalarrými: 6 einstaklingar.
Hvíldarinnlagnir: 33 einstaklingar.

2.  Rekstraryfirlit 1. janúar til 31. ágúst 2021
Lagt fram.

3.  Fjárhagsáætlun 2022
Samkvæmt framlagðri áætlun fyrir árið 2022 er gert ráð fyrir að rekstrartekjur Höfða nemi 1.298,6 mkr. og rekstrargjöld án fjármagnsliða og afskrifta nema 1.254,8 mkr. Afskriftir nema 25,1 mkr. og fjármagnsliðir nema nettó 14,6 mkr. Óreglulegir liðir nema 18,6 mkr. Hagnaður af rekstri án óreglulegra liða nemi 4,1 mkr. en með óreglulegum liðum nemi tapið 14,6 mkr. Handbært fé frá rekstri nemi 22,8 mkr., fjárfestingahreyfingar nemi nettó 105,6 mkr. og fjármögnunarhreyfingar nemi 18,6 mkr. Lækkun á handbæru fé nemi 101,5 mkr. og að handbært fé í árslok verði 78,1 mkr.
Lögð fram til fyrri umræðu ásamt greinargerð framkvæmdastjóra.

4.  Fjárhagsáætlun 2023-2025
Lögð fram til fyrri umræðu.

5.  Gjaldskrá Höfða
Stjórn Höfða samþykkir framlagða tillögu framkvæmdastjóra um nýja gjaldskrá fyrir verð á útseldu fæði frá Höfða. Verð pr. máltíð hækki úr kr. 1.123 í kr. 1.172 eða um 4,36% sem nemur hækkun vísitölu neysluverðs frá september 2020 til september 2021. Hækkun tekur gildi frá og með 1. janúar 2022.

6.  Samningur við Sjúkratryggingar Íslands, viðauki um rekstur dagdvalar
Viðauki við samning Höfða við Sjúkratryggingar Íslands um rekstur og þjónustu hjúkrunarheimilis. Viðaukin tekur til rekstrar á 20 almennum dagdvalarrýmum og 5 sérhæfðum dagdvalarrýmum fyrir einstaklinga með heilabilunarsjúkdóm.
Stjórn Höfða samþykkir viðauka við samning.

Fleira ekki gert.

 

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00