Stjórn Grundartangahafnar (2002-2004)
Ár 2002, mánudaginn 26. ágúst 2002 kom stjórn Grundartangahafnar saman til fundar í fundarsal í fundarsal Íslenska Járnblendifélagsins að Grundartanga og hófst fundurinn kl. 10:00.
Mættir voru: Sturlaugur Haraldsson,
 Gunnar Sigurðsson,
 Sigurður Sverrir Jónsson,
 Sigurður Valgeirsson,
 Ásbjörn Sigurgeirsson,
 Sveinbjörn Eyjólfsson
Auk þeirra Gísli Gíslason, hafnarstjóri Grundartangahafnar.
Fyrir tekið:
1. Skipun stjórnar.
Upp er komin sú staða að héraðsnefnd Mýra- og Borgarfjarðarsýslu hefur tilnefnt tvo aðalmenn og tvo til vara en samvæmt reglugerð hafnarinnar er aðeins gert ráð fyrir tilnefningu eins fulltrúa og eins til vara. Lagt er fram á fundinum bréf Davíðs Péturssonar f.h. héraðsnefndar Borgarfjarðarsýslu dags. 20. ágúst s.l.
Stjórnin samþykkir að fresta fyrirliggjandi dagskrá um eina viku og er óskað eftir því að héraðsnefndir Mýra- og Borgarfjarðarsýslu komi sér saman um tilnefningu í samræmi við reglugerð hafnarinnar.
Fleira ekki gert,
Fundi slitið kl. 10:55
 
					
 
  
 



