Fara í efni  

Stjórn Akranesstofu (2008-2013)

28. fundur 28. maí 2010 kl. 17:00 - 17:30

28. fundur stjórnar Akranesstofu var haldinn föstudaginn 28. maí 2010 í fundarherbergi á bæjarskrifstofu Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18 og hófst hann kl. 17:00.

_____________________________________________________________ 

Mættir:                  Þorgeir Jósefsson, formaður

                             Bergþór Ólason, varaformaður

                             Björn Guðmundsson, aðalmaður

                             Margrét Snorradóttir, aðalmaður

                             Hjördís Garðarsdóttir, aðalmaður

                             Daníel Ottesen, varamaður, fulltrúi Hvalfjarðarsveitar

Auk þeirra Tómas Guðmundsson, verkefnastjóri sem einnig ritaði fundargerð.

Jón Allansson, forstöðumaður Byggðasafnsins boðaði forföll.

Formaður setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna.

_____________________________________________________________ 

Fyrir tekið:

1.       Ársreikningur Byggðasafnsins 2009

Til fundarins mætti Andrés Ólafsson, fjármálastjóri Akraneskaupstaðarog fór yfir ársreikninga Byggðasafnsins.

Rekstrartekjur safnsins á árinu námu 41,2 millj. kr., en þar af námu rekstrarframlög eigenda um 27,7 millj. kr. Rekstrargjöld námu 50,2 millj. Neikvæð rekstrarafkoma árins nam 10,0 millj. kr. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir safnsins í árslok 83,8 millj. kr. og heildarskuldir 27,8 millj. kr. Eigið fé í lok árins nam 55,9 millj. kr.

Rekstrarhalli safnins skýrist að mestu leiti af endurreikningi lífeyrisskuldbindingar upp á 6,8 millj. kr.

Stjórn Akranesstofu, auk fulltrúa Hvalfjarðarsveitar, samþykkir ársreikninginn og undirritar hann. Forstöðumaður Byggðasafnsins hafði áður staðfest reikninginn með undirskrift sinni.

2.    Kútter Sigurfari

Verkefnastjóri gerði grein fyrir viðræðum sínum við tengilið sinn í menntamálaráðuneyti varðandi erindi Akraneskaupstaðar um breytingar á samningi um Kútter Sigurfara.

Fleira ekki gert, fundi slitið kl.  17:30.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00