Starfshópur um uppbyggingu mannvirkja á Jaðarsbökkum
2512-5540 : Uppbygging mannvirkja á Jaðarsbakka starfshópur
Efni fundar er svör KFÍA sem bárustu 5. febrúar við spurningar lista sem var send helstu hagsmunaaðilum að Jaðarsbakka svæðinu lögð fram.
Lögð voru fram svör frá KFÍA, dagsett 5. febrúar, við spurningalista sem sendur var helstu hagsmunaaðilum á Jaðarsbakkasvæðinu. Farið var yfir svörin á fundinum.
Samþykkt var að leita til Basalt arkitekta um gerð grófrar tillögu að heildarskipulagi svæðisins með eftirfarandi forsendum:
- Staðsetning fyrir 50 metra innisundlaug á svæðinu.
- Uppbygging æfingavallar austan megin við Akraneshöll.
- Líkamsrækt á svæðinu með tengingu við sundlaug.
- Endurbætur á Aðalvelli og uppfærð stúka.
- Byggingarreitur á svæðinu fyrir íþróttatengda starfsemi sunnan við Akraneshöll og þjónustu starfsemi á vestur hluta svæðisins.
- Uppbygging félagsrýma til sameiginlegrar notkunar fyrir aðildarfélög ÍA og frístund Grundaskóla.
- Tengibygging fyrir nýja íþróttahús.
- Strandstígur og bætt aðgengi að Langasandi.
- Aðstaða fyrir Guðlaugu.
- Að ekki verði gert ráð fyrir hóteli á svæðinu.
- Jafnframt skal í tillögunni sérstaklega skoða flæði og umferð innan svæðisins með hliðsjón af notkun íþróttamannvirkja, skólabarna, líkamsræktar, almennings og stórra viðburða.
- Standa þarf enn betur að lýsingu og aðgengi fyrir gangandi, hjólandi og akandi.
- Á Jaðarsbökkum verði miðstöð heilsu, íþrótta og hreyfingar, með skýra tengingu við sjóinn og Langasand.
- Fókus á sjálfbærni, umhverfið og náttúruna, og um leið styðja við heildstæð markmið bæjarins um uppbyggingu sterkra innviða, aukin lífsgæði, farsæld og aðdráttarafl fyrir íbúa og gesti.
- Að lokum skal þess getið að í allri núverandi vinnu verði horft til þeirra gagna sem þegar hafa verið unnin og þau notuð til hliðsjónar.
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





