Fara í efni  

Starfshópur um atvinnumál (2011-2013)

24. fundur 28. nóvember 2012 kl. 20:00 - 20:45

24. fundur starfshóps um atvinnumál, haldinn  í fundarherbergi 1. hæð, Stillholti 16-18, 28. nóvember 2012 og hófst hann kl. 20:00

Fundinn sátu:
Hörður Svavarsson, aðalmaður
Ólafur Adolfsson, aðalmaður
Sævar Freyr Þráinsson, aðalmaður
Guðni Tryggvason, aðalmaður
Ingibjörg Valdimarsdóttir (IV), formaður
Guðjón Steindórsson, verkefnisstjóri
Fundargerð ritaði:  Guðjón Steindórsson, verkefnastjóri.

Fyrir tekið:
1. 1209084 - Vaxtasamningur Vesturlands
Fundarmenn upplýstir um stöðu mála varðandi umsókn Sementsverksmiðjunnar í Vaxtasamning Vesturlands en fyrirtækið er að vinna að umsókn með aðstoð Akraneskaupstaðar varðandi skoðun á nýtingu ónotaðs húsnæðis þeirra.

2. 1210202 - Íþróttahús - tækjakaup, fyrirkomulag o.fl. vegna viðburða
Málið er í vinnslu.  Verið að vinna að viðskiptaáætlun í kringum verkefnið sem verður kynnt síðar.

3. 1205062 - Þróunar- og nýsköpunarfélag Hvalfjarðarsveitar, Skorradalshrepps, Akraness, Borgarbyggðar og Faxaflóahafna.
Kynning á drögum að samþykktum / skipulagsskrá þróunarfélagsins.
Verkefnastjóri kynnti fundarmönnum fyrstu drög að skipulagsskrá þróunar- og nýsköpunarfélagsins.  Stefnt að því að klára þá vinnu um áramótin.

4. 1211075 - Almenningssamgöngur / leigubílaakstur - athugasemd vegna breytinga á reglugerð.
Tölvupóstur Haraldar Ólasonar dags. 8. nóvember 2012 og bréf Ólafs Jón Guðmundssonar og Svans Jónssonar dags. 15. nóvember 2012, vegna breytinga á reglugerð um almenningssamgöngur.
Fundarmenn óska eftir því að verkefnastjóri afli frekari upplýsinga um málið.

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 20:45.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00