Fara í efni  

Skólanefnd (2000-2008)

72. fundur 06. febrúar 2008 kl. 17:30 - 19:00

72. fundur skólanefndar Akraness haldinn í bæjarþingsalnum miðvikudaginn 6. febrúar 2008 kl. 17:30.


 

Mætt á fundi:              Eydís Aðalbjörnsdóttir, formaður

                                 Ingþór B. Þórhallsson, varaformaður

                                 Halla Ingibjörg Guðmundsdóttir

                                 Ingibjörg Valdimarsdóttir,

                                 Gunnar Freyr Hafsteinsson

 

Áheyrnarfulltrúar:

Sigurður A. Sigurðsson, aðstoðarskólastjóri Grundaskóla

Björg Jónsdóttir, fulltrúi leikskólastjóra

Ásta Huld Jónsdóttir, fulltrúi starfsfólks leikskóla

Sigurveig Kristjánsdóttir, fulltrúi grunnskólakennara

Hjördís Grímarsdóttir, fulltrúi foreldra leikskólabarna

Valdís Sigurðardóttir, fulltrúi foreldra grunnskólabarna


                                

                                

Fundinn sat einnig Helga Gunnarsdóttir, sviðsstjóri sem skrifaði fundargerð.

 

Í upphafi fundar var vakin athygli  á því að 6. febrúar er tileinkaður leikskólanum, börnum hans og málefnum. En Félag leikskólakennara, menntamálaráðuneytið, Heimili og skóli ásamt Sambandi íslenskra sveitarfélaga hafa sameinast um þessa tileinkunn.  En 6. febrúar verður framvegis tileinkaður leikskólunum.

 

1.  Sumarlokun leikskóla. Sumarið 2007 var samræmd sumarlokun leikskólanna tvær síðustu vikur fyrir verslunarmannahelgi. Skólanefnd samþykkir að sama fyrirkomulag verði sumarið 2008 þannig fæst nægileg reynsla til að meta hvort þessi tímasetning er heppileg. Skólanefnd samþykkir einnig að gerð verði könnun á viðhorfum foreldra til tímasetningar sumarlokunar og fleiri þátta á komandi vori. Allir leikskólarnir verða því lokaðir frá 21. júlí til og með 4. ágúst.

 

2.  Námskeiðsdagur starfsfólks leikskóla. Á fundi skólanefndar 5. desember 2006 heimilaði skólanefnd að leikskólarnir gætu nýtt þrjá daga á hverju skólaári til skipulags og fræðslu í stað tveggja áður. Ákvörðunin um þriðja daginn var eingöngu tekin til eins árs. Reynsla að viðbótardeginum er góð og óska leikskólastjórar eindregið eftir að tekin verði ákvörðun um að framvegis hafi leikskólastjórar þrjá daga til umráða til fræðslu og skipulags. Skólanefnd samþykkir tillögu leikskólastjóranna.  

 

3.  Ársskýrsla um faglegt starf í leikskólum 2006 ?2007 ? Rekstrarskýrsla leikskóla haustið 2007.  Skýrslan lögð fram.

 

4.   Húsnæðismál leikskólans Garðasels. Bæjarráð hefur falið skólanefnd að undirbúa flutning leikskólastarfs úr Selinu sem hefur verið starfrækt við Garðasel til bráðabirgða. Rætt um hvenær Selið verður tekið úr notkun sem leikskólahúsnæði. Skólanefnd leggur til að leikskólastarfi verði hætt í Selinu frá og með 1. ágúst. Og í framhaldi af því telur skólanefnd skynsamlegan kost í stöðunni að Selið verði nýtt fyrir Grundaskóla skólaárið 2008 ? 2009. Nýting Selsins og aðlögun að grunnskólastarfi verður gerð í samráði við skólastjórnendur Grundaskóla. Selið er 113 fermetrar og var nýtt sem tvær kennslustofur í FVA. Leikskólastarf í nýja leikskólanum við Ketilsflöt mun hefjast 1. ágúst og verða þá þrjár deildir teknar í notkun. Seinni þrjár deildirnar verða teknar í notkun 1. janúar 2009. Skólanefnd mun leita úrlausna ef fyrirliggjandi leikskólarými verða ekki nægjanleg. Einnig kom fram að í undirbúningi er að ráðast í endurbætur í lóð Garðasels á komandi sumri.

 

5.  Verkefnisstyrkur leikskóla 2008. Ein umsókn barst um verkefnastyrk leikskóla frá leikskólanum Garðaseli. Styrkurinn yrði nýttur til að búa til deildarnámskrár. Skólanefnd samþykkir að verkefnisstyrkurinn renni til Garðasels.

 

6. Önnur mál. 

v     Bréf frá menntamálaráðuneytinu þar sem upplýst er um að ráðuneytið mun gera úttekt á sjálfsmatsaðferðum Brekkubæjarskóla. Lagt fram

v     Bréf bæjarráðs frá 30. janúar sl. þar sem bæjarráð hefur móttekið upplýsingar frá skólastjórum grunnskólanna um nemendafjölda í árgangi, kennslurými og nýtingu þess. Bæjarráð óskar eftir framtíðarsýn skólanefndar á húsnæðisþörf grunnskólanna á næstu árum. Lagt fram.

v     Skólanefnd hefur ákveðið að senda starfshópi í FVA, sem fjallar um samvinnu grunn- og framhaldsskóla, upplýsingar um viðhorf foreldra grunnskólabarna til þess að grunnskólanemendur stundi alfarið nám í framhaldsskóla sbr. foreldrakönnun sem lögð var fyrir á síðustu haustönn. Í könnuninni kom fram að 53% foreldra er mjög eða frekar sammála því að 15 ára ungmenni geti byrjað í fullu námi í framhaldsskóla.

v     Björg upplýsti um hvernig verkefnið Heimspeki og tónlisti hefur þróast á síðasta ári en verkefnið fékk verkefnisstyrkinn á síðasta ári.

v     Ásta upplýsti að þrír nemendur frá Akranesi hafa komið áfram í pönklagakeppni á Rás 2 og eru nú í þriggja laga úrslitum.

          

 Fleira ekki gert fundi slitið kl.  19:00

 

 

 

 

 

 

 

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00