Fara í efni  

Skólanefnd (2000-2008)

64. fundur 05. desember 2006 kl. 17:00 - 18:30

64. fundur skólanefndar Akraness haldinn í Brekkubæjarskóla miðvikudaginn 6. desember 2006 kl.17:00.


 

Mætt á fundi:              Eydís Aðalbjörnsdóttir, formaður

                                 Ingþór B. Þórhallsson, varaformaður

                                 Sveinn Kristinsson

                                 Hjördís Árnadóttir

Áheyrnarfulltrúar  leikskólanna:

Brynhildur Björg Jónsdóttir fulltrúi leikskólastjóri

Ásta Huld Jónsdóttir, fulltrúi starfsfólks leikskóla

 

Fundinn sátu einnig Svala Hreinsdóttir verkefnisstjóri og Helga Gunnarsdóttir sviðsstjóri sem skrifaði fundargerð.


 

1. Málefni leikskólanna.

v     Sumarlokun leikskólanna.

Leikskólarnir hafa undanfarin ár verið lokaðir tvær vikur á sumri. Leikskólastjórar telja að æskilegast fyrirkomulagið sé að leikskólarnir loki allir á sama tíma tvær vikur aðliggjandi að verslunarmannahelgi. Á þeim tíma eru flestir foreldrar í sumarleyfi og skipulagið verður auðveldarar frá ári til árs ef alltaf er um sama tímabil að ræða.  Skólanefnd styður að gerð verði tilraun með að allir leikskólarnir loki frá 23. júlí til 7. ágúst sumarið 2007.

 

v     Fræðsluferðir leikskólanna Garðasels og Teigasels.

Skólanefnd hefur fengið ósk um að skipulagsdagur sem gert er ráð fyrir að verði 2. janúar verði færður til 20. apríl vegna fræðsluferðar starfsfólks leikskólanna. Málið hefur verið kynnt fyrir foreldrum og gera þeir ekki athugasemdir. Skólanefnd samþykkir þessa breytingu á skóladagatali leikskólanna.

 

v     Námskeiðsdagur fyrir starfsfólk leikskólanna.

Skólanefnd hefur borist bréf frá Brynhildi Björgu Jónsdóttur f.h. leikskólastjóra þar sem óskað er eftir að leikskólarnir fái að loka einn dag á ári til að sinna fræðslu starfsfólks. Skólanefnd hefur kynnt sér málið í öðrum sveitarfélögum og kemur í ljós að starfsfólk leikskóla hefur alla jafna einn dag á ári sem ætlaður er til námskeiðahalds auk tveggja skipulagsdaga. Í nýgerðum kjarasamningi leikskólakennara er bókun þar sem fjallað er um skipulagsdaga (28.gr) Þar er gert ráð fyrir að fram fari umræða um þörf fyrir skipulagsdaga milli rekstraraðila og starfsmanna leikskóla og sömuleiðis skal huga að markvissri símenntun í tengslum við skipulagsdaga.  Skólanefnd hefur áður fjallað um málið og hafði þær væntingar að nýr kjarasamningur mótaði skýrar reglur. Skólanefnd styður að gerð verði tilraun með að heimila leikskólunum að hafa þrjá skipulagsdaga á komandi ári 2007 og hann tímasettur á skipulagdegi grunnskólanna.

 

v     Verklagsreglur leikskólanna.

Nokkrar minniháttar breytingar voru gerðar á verklagsreglum leikskólanna og þær síðan samþykktar. Nýjar verklagsreglur verða sendar til bæjarráðs til staðfestingar.

                                                                                                                          

2. Sérfræðiþjónusta skóla.

Sigurveig Sigurðardóttirkynnti sérfræðiþjónustu skólanna á Akranesi. Hún dreifði árskýrslu fyrir skólaárið 2005- 2006. Í máli hennar kom m.a. fram fjöldi tilvísana, kynjahlutfall og fleira skipt eftir skólastigum sem sjá má í skýrslu sérfræðiþjónustunnar.

 

3. Önnur mál. 

Svala Hreinsdóttir lagði fram skýrslu um starf leikskólanna.

 

Fleira ekki gert fundi slitið kl. 18:30

 

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00