Fara í efni  

Skólanefnd (2000-2008)

44. fundur 02. mars 2005 kl. 17:00 - 19:00

44. fundur skólanefndar Akraness haldinn í bæjarþingsal á Akranesi, miðvikudaginn 2. mars 2005 kl. 17:00.


Mætt á fundi:              Jóhanna Hallsdóttir formaður

                                 Jónas H. Ottósson, varaformaður

                                 Ingþór B. Þórhallsson

                                 Sigrún Ríkharðsdóttir

Áheyrnarfulltrúar:       Auður Hrólfsdóttir, skólastjóri

                                 Guðbjartur Hannesson, skólastjóri

                                 Guðmundur Þorvaldsson, fulltrúi foreldra grunnskólabarna

                                 Ingileif Daníelsdóttir, fulltrúi kennara

                                

Sérstaktir gestir fundarins: Sigmundur Ámundason deildarstjóri bókhaldsdeildar og Andrés Ólafsson fjármálastjóri, Sigrún Gísladóttir leikskólafulltrúi og einnig sat Helga Gunnarsdóttir sviðsstjóri menningar- og fræðslusviðs sat fundinn og ritaði fundargerð.


Fyrir tekið:

 

1.  Málefni grunnskóla.

Runólfur Birgir Leifsson, forstöðumaður fjármálasviðs Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur, kynnti líkan sem notað er við úthlutun fjármagns til grunnskólanna í Reykjavík. Líkanið er nú notað í Reykjanesbæ, Garðabæ og Hafnarfirði auk Reykjavíkur við fjárhagsáætlunargerð og kennslustundaúthlutun grunnskóla. Líkanið styður við hugmyndafræðina: ?einstaklingsbundið nám.? Runólfur kynnti reynslu af ýmsum þáttum í áætlunargerðinni og sagði frá því að skólarnir fá að flytja rekstrarafgang milli ára og sömuleiðis verða þeir að greiða halla fyrra árs upp. Hann sýndi ýmsar upplýsingar sem hægt er að fá sundurliðaðar út úr kerfinu. Talsverðar umræður urðu um líkanið og Runólfur svaraði fyrirspurnum.

 

2.  Önnur mál.

Formaður kynnti breytingu á skóladagatali skólaársins 2004-2005. Vegna þess að samræmdum prófum var seinkað hefur Námsmatsstofnun orðið að seinka skilum á einkunnum í samræmdum prófum. Fram er komin tillaga um að skólaslit verði 8. júní í stað 7. júní hjá 10. bekkjum. Skóladagatalið er að öðru leyti óbreytt. Breytingin hefur verið kynnt foreldraráðum og engar athugasemdir eru fyrirliggjandi vegna þessa. Skólanefnd samþykkir þessar breytingu.

 

Skólastjórar lögðu fram drög að skóladagatali vegna skólaársins 2005 -2006 en málið verður tekið fram síðar. 

 

 

Fleira ekki gert ? fundi slitið kl. 19:00

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00