Fara í efni  

Skóla- og frístundaráð

285. fundur 20. maí 2026 kl. 15:00 - 16:30 Lindin, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Jónína Margrét Sigmundsdóttir formaður
  • Liv Aase Skarstad varaformaður
  • Ragnheiður Helgadóttir varamaður
Starfsmenn
  • Dagný Hauksdóttir sviðsstjóri mennta- og menningarsviðs
  • Guðrún Þ. Sturlaugsdóttir verkefnastjóri farsæls frístundastarfs
Fundargerð ritaði: Dagný Hauksdóttir Sviðsstjóri

1. 2605-3824 - Skráningardagar skólaárið 2026-2027

Leikskólastjórar leggja fram tillögu að skráningardögum fyrir skólaárið 2026-2027. Íris Guðrún Sigðurðardóttir leikskólastjóri fylgir erindinu eftir fyrir hönd stjórnenda. Sylvía Hera Skúladóttir áheyrnarfulltrúi starfsfólks leikskóla og Hjörvar Gunnarsson áheyrnarfulltrúi foreldra sitja fundinn undir dagskrárliðum 1-2.

Skóla- og frístundaráð samþykkir að skráningardagar fyrir skólaárið 2026-2027 verði, alls 10, dagana:19. og 20. október (vetrafrí grunnskólanna) 28, 29. og 30. desember (milli jóla og nýárs)  19.og 22. febrúar (vetrafrí grunnskólanna) 22.-24 mars (Dymbilvika) 

2. 2605-3732 - Skóladagatal leikskóla 2026-2027

Leikskólastjórar Teigasels og Vallarsels óska eftir tilfærslu á skipulagsdögum vegna fyrirhugaðra náms- og kynnisferða starfsmanna vorið 2027.

Skóla- og frístundaráð samþykkir að skipulagsdagar leikskólanna Teigasels og Vallarsels verði færðir til. Ráðið leggur áherslu á að foreldrar fái góðar og tímanlegar upplýsingar um breytingarnar þegar endanlegar dagsetningar liggja fyrir

Áheyrnarfulltrúar leikskólanna víkja af fundi.

3. 2602-1682 - Lykiltölur farsældar- og barnaverndarþjónustu 2025

Sviðstjóri fer yfir lykiltölur farsældarþjónustu á Akranesi fyrir árið 2025.

Skóla- og frístundaráð þakkar fyrir kynninguna og gagnlegar upplýsingar. Kynningin staðfestir að farsældarþjónusta á Akranesi er áfram til fyrirmyndar og að börnum og fjölskyldum er veitt góð og markviss þjónusta. Tölur ársins 2025 benda til þess að markmið um fækkun 3. stigs mála séu að nást, sem gefur mikilvægar vísbendingar um árangur snemmtæks inngrips.

4. 2603-2600 - Greining á brottfalli úr skipulögðu frístundastarfi við unglingsaldur á Akranesi

Verkefnastjóri farsæls frístundastarfs kynnti niðurstöður könnunar sem lögð var fyrir nemendur í 10. bekk á Akranesi um þátttöku þeirra í skipulögðu frístundastarfi. Niðurstöðurnar sýna að um 70% nemenda taka þátt í slíku starfi, mæta reglulega í Arnardal, æfa íþróttir eða stunda tónlistarnám. Framundan er að greina nánar brottfall unglinga úr skipulögðu frístundastarfi í samstarfi við svæðisfulltrúa íþróttahéraða á Vesturlandi og ÍA.

Skóla- og frístundaráð þakkar fyrir gagnlega kynningu og lýsir ánægju með góða þátttöku nemenda í 10. bekk í skipulögðu frístundastarfi. Ráðið óskar eftir að fá kynningu á niðurstöðum greiningar á brottfalli úr frístundastarfi þegar þær liggja fyrir.

5. 2604-3317 - 8. bekkur sumar 2026 - Hugmyndir af námskeiðum/viðburðum

Verkefnastjóri farsæls frístundastarf kynnir þá valmöguleika sem standa börnum í 8.bekk til boða í sumar í stað þátttöku í Vinnuskólanum. Boðið verður uppá fjölbreytta valmöguleika sem börn í 8.bekk geta skráð sig í, þeim að kostnaðarlausu.Kynning og skráning hefst þriðjudaginn 27. maí nk.

Lagt fram til kynningar.

6. 2601-0028 - Framhaldsmál - ÍA - rekstur. samskipti og samningur 2026

Sviðstjóri kynnir fyrir ráðinu samantekt um samstarf ÍA og Akraneskaupstaðar á liðnu kjörtímabili. Fundarseta fulltrúa ÍA hefur aukist mikið á milli kjörtímabila sem og samstarf ÍA og Akraneskaupstaðar.

Skóla- og frístundaráð vill færa Íþróttabandalagi Akraness og aðildarfélögum þess þakkir fyrir gott og farsælt samstarf á kjörtímabilinu. Samstarfið hefur verið umfangsmikið, samfellt og mikilvægt fyrir báða aðila og náð til fjölbreyttra verkefna, þar á meðal stefnumótunar, samningsgerðar, uppbyggingar íþróttamannvirkja, nýtingar húsnæðis, sértækra verkefna fyrir börn og ungmenni, frístundastyrks, heilsueflingar og ýmissa sameiginlegra úrlausnarefna.

7. 2604-3228 - Skammtímadvöl á Laugarbraut - Frumáætlun

Drög að frumáætlun um uppbyggingu skammtímadvalar á lóðinni við Laugarbraut 6 liggur fyrir. Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 19.05.2026 var gerð eftirfarandi bókun: Velferðar- og mannréttindaráð leggur til að farið verði í frumhönnun. Ráðið leggur jafnframt til að verkefnahópurinn sem skilaði frumáætlun haldi áfram störfum við undirbúning frumhönnunar en fái jafnframt stuðning þvert á svið Akraneskaupstaðar. Málinu vísað til umfjöllunar í bæjarráði, skipulags- og umhverfisráði, mennta- og menningarráði og til kynningar í notendaráði um málefni fatlaðs fólks á Akranesi.

Lagt fram til kynningar. Skóla- og frístundaráð vekur athygli á því að í núverandi húsnæði á lóðinni að Laugarbraut 6, gamla slökkvistöðin, er nú fjargeymslurými Byggðasafnsins í Görðum. Gera þarf ráð fyrir kostnaði vegna nýs fjargeymslurýmis fyrir muni safnsins í kafla V, Framkvæmdarkostnaður.

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu