Fara í efni  

Skóla- og frístundaráð

284. fundur 06. maí 2026 kl. 15:15 - 17:00 Lindin, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Jónína Margrét Sigmundsdóttir formaður
  • Liv Aase Skarstad varaformaður
  • Þórður Guðjónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Dagný Hauksdóttir sviðsstjóri mennta- og menningarsviðs
  • Maren Ósk Elíasdóttir verkefnastjóri mennta- og menningarsviðs
Fundargerð ritaði: Dagný Hauksdóttir Sviðsstjóri

1. Stefna og viðbragðsáætlun í EKKO málum

Drög að stefnu og viðbragðsáætlunar Akraneskaupstaðar í EKKO málum var til umfjöllunar á fundi bæjarráðs þann 16. apríl sl. og þá vísað til fagráða Akraneskaupstaðar en gert er ráð fyrir að bæjarstjórn geti afgreitt málið á lokafundi sínum þann 12. maí nk.

Skóla- og frístundaráð fagnar framlagðri EKKO stefnu og samþykkir hana fyrir sitt leyti.

2. Tillaga að breytingu á framlagi frístundastyrkja

Samhliða endurskoðun þjónustusamnings milli Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness hefur skóla- og frístundaráð unnið að tillögum um breytingar á frístundastyrkjum. Tillögurnar fela í sér fjögurra ára áætlun um hækkun styrkjanna þar sem gert er ráð fyrir að frístundastyrkur hækki um 20% á ári, á tímabilinu 2027-2030. Heiðar Mar Björnsson framkvæmdastjóri ÍA situr undir þessum fundarlið.

Skóla- og frístundaráð leggur til við bæjarráð að frístundastyrkur Akraneskaupstaðar verði hækkaður í áföngum á næstu fjórum árum, um 20% árlega. Með tillögunni er stigið mikilvægt skref til að efla frístundastuðning sveitarfélagsins og færa hann nær því sem almennt gerist í öðrum sveitarfélögum, stuðla að aukinni þátttöku barna í skipulögðu íþrótta- og frístundastarfi og styðja við barnafjölskyldur á Akranesi.

3. Stuðningur við afreksíþróttastarf ÍA með kaupum á æfingatækjum í þreksal

Íþróttabandalag Akraness óskar eftir stuðningi Akraneskaupstaðar við afreksíþróttastarf með þeim hætti að sveitarfélagið kaupi líkamsræktartæki sem bandalagið hefur fjárfest í fyrir nýjan þreksal á Jaðarsbökkum og afhendi bandalaginu tækin að gjöf. Heiðar Mar Björnsson framkvæmdastjóri ÍA fylgir málinu eftir.

Skóla- og frístundaráð getur ekki orðið við beiðni Íþróttabandalags Akraness um fjárstuðning í formi kaupa á líkamsræktartækjum félagsins í nýjum afreksþreksal á Jaðarsbökkum. Framlag Akraneskaupstaðar til afreksíþróttastarfs, umfram þjónustusamning sveitarfélagsins við Íþróttabandalag Akraness, felst meðal annars í nýrri aðstöðu fyrir afreksþreksal í íþróttahúsi á Jaðarsbökkum. Ákvarðanir um fjárfestingu í umræddum búnaði voru teknar á ábyrgð stjórnar Íþróttabandalags Akraness og telur ráðið því að áframhaldandi úrlausn málsins sé á hendi bandalagsins.

4. ÍA - rekstur. samskipti og samningur 2026

Vinna við endurskoðun á þjónustusamningi milli Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness. Heiðar Mar Björnsson framkvæmdastjóri ÍA situr þennan dagskrárlið. Sjötti fundur um endurskoðun á þjónustusamningi Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness.

Vinnuhópur um endurskoðun á þjónustusamningi Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness hefur lokið störfum og leggur hér fram nýjan samning til áranna 2027-2031 og vísar honum til umfjöllunar hjá bæjarráði. Skóla- og frístundaráð lýsir yfir ánægju með nýjan samning og þakkar framkvæmdarstjóra ÍA og embættismönnum fyrir samvinnunna í ferlinu.

Heiðar Mar Björnsson framkvæmdastjóri ÍA víkur af fundi.

5. 2603-2105 - Brúin

Heiðrún Janusardóttir verkefnastjóri frístunda- og forvarnarmála fylgir eftir tillögum að breytingum starfsreglum Brúarinnar. Brúin er formlegur samráðs- og og samstarfsvettvangur starfsmanna og stofnana í opinberri þjónustu sem koma að ýmsum málum sem tengjast forvörnum í sveitarfélaginu með áherslu á börn og ungmenni.

Skóla- og frístundaráð þakkar fyrir yfirferðina og tekur undir með verkefnastjóra að Brúin er mikilvægur liður í öflugu forvarnarstarfi á Akranesi. Ráðið samþykkir framlagðar breytingartillögur á starfsreglum Brúarinnar.

Heiðrún Janusardóttir verkefnastjóri frístunda- og forvarnarmála víkur af fundi.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu