Skóla- og frístundaráð
|
1. 2604-3126 - Erindi leikskólastjóra til skóla- og frístundaráðs Barngildi í leikskólum Leikskólastjórar á Akranesi óska eftir endurskoðun á barngildum Akraneskaupstaðar. Lagt er til að fyrst verði litið til þess að hækka barngildi elsta árgangs leikskólanna úr 0,8 í 1,0. Sú breyting myndi fela í sér að farið yrði úr 10 börnum á hvern starfsmann niður í 8 börn á hvern starfsmann fyrir 5-6 ára börn. Anney Ágústsdóttir leikskólastjóri fylgir erindinu eftir fyrir hönd stjórnenda. Sylvía Hera Skúladóttir áheyrnarfulltrúi starfsfólks leikskóla og Hjörvar Gunnarsson áheyrnarfulltrúi foreldra sitja fundinn undir dagskrárliðum 1-3. Skóla- og frístundaráð tekur jákvætt í erindi leikskólastjóra um endurskoðun barngilda í leikskólum Akraneskaupstaðar og vísar því til afgreiðslu hjá bæjarráði. Ráðið lýsir stuðningi við að barngildi elsta árgangs verði hækkað úr 0,8 í 1,0 með það að markmiði að bæta gæði þjónustu, auka öryggi barna og bæta starfsaðstæður starfsfólks. Umrædd breyting felur í sér fjölgun um 3,4 stöðugildi sem skiptast á milli leikskóla sveitarfélagsins. Áætlaður heildarkostnaður vegna breytingarinnar nemur um 40 m.kr. |
|
2. 2604-3106 - Erindi foreldraráða leikskóla - endurskoðun á barngildisviðmiðum í leikskólum Sameiginlegt erindi frá foreldraráðum Garðasels, Akrasels, Vallarsels og Teigasels þar sem komið er á framfæri áhyggjum af þeim barngildisviðmiðum sem bæjarfélagið styðst við. Að mati foreldraráðanna þarf að endurskoða barngildisútreikninga og uppfæra þá í takt við þróun síðustu ára líkt og mörg sveitarfélög hafa gert. Sérstaklega þarf, að þeirra mati, að skoða elsta árganginn þar sem hvert barn reiknast sem 0,8 barngildi. Að mati foreldra eru þessi viðmið orðin úrelt og endurspegla ekki raunverulegar aðstæður í leikskólum í dag. Hjörvar Gunnarsson fulltrúi foreldra fylgir málinu eftir fyrir hönd foreldraráðanna. Skóla- og frístundaráð þakkar foreldraráðum leikskólanna fyrir erindið og tekur jákvætt í það, samanber bókun undir dagskrárlið 1. Málinu vísað áfram til umfjöllunar í bæjarráði. |
|
3. 2604-3210 - Erindi frá leikskólastjórum um breytingar á reiknilíkani leikskólanna Leikskólastjórar á Akranesi óska eftir að reiknilíkan leikskólanna verði uppfært og skerðingar vegna starfsmanna í eldhúsum og umsjón þvotta verði teknar út. Skóla- og frístundaráð leggur til við bæjarráð að reiknilíkan leikskólanna verði endurskoðað og að skerðingar vegna starfsmanna í eldhúsum og umsjónar þvotta verði felldar út. Ráðið telur mikilvægt að reiknilíkanið taki mið af aðstæðum í leikskólum, meðal annars vegna aukinna verkefna tengdum þvotti í kjölfar fjölgunar yngri barna, aukinna krafna um hollustuhætti og matargerð frá grunni sem og vaxandi þarfa fyrir sérfæði vegna ofnæmis og óþols. Breytingin felur í sér aukningu um eitt stöðugildi sem dreifist á alla leikskóla sveitarfélagsins og er áætlaður kostnaður um 11 m.kr. Skóla- og frístundaráð vísar málinu til afgreiðslu hjá bæjarráði. Áheyrnarfulltrúar leikskóla víkja af fundi. |
|
4. 2604-3209 - Ósk um viðbótarfjármagn til kaupa á hljóðkerfið í Þorpið Forstöðumaður Þorpsins frístundamiðstöðvar óskar eftir viðbótarfjárveitingu til kaupa á hljóðkerfi fyrir Þorpið. Um er að ræða notað hljóðkerfi frá Hinu Húsinu. Ívar Orri Kristjánsson forstöðumaður Þorpsins og Heiðrún Janusardóttir verkefnastjóri frístunda- og forvarnarmála sitja fundinn undir dagskrárliðum 4 og 5. Skóla- og frístundaráð leggur til við bæjarráð að Þorpinu verði veitt viðbótarfjárveiting til kaupa á hljóðbúnaði. Um er að ræða kaup á notuðum búnaði og er heildarkostnaður áætlaður 600.000 kr. Málinu er vísað til afgreiðslu í bæjarráði. |
|
5. 2604-3194 - Deildarstjóri unglingastarfs í Þorpinu Erindi frá forstöðumanni Þorpsins frístundamiðstöðvar um breytingar á skipuriti sem felur í sér stofnun nýs starfs deildarstjóra unglingastarfs. Skóla- og frístundaráð tekur jákvætt í erindi forstöðumanns Þorpsins um stofnun stöðu deildarstjóra unglingastarfs. Með stöðunni yrði faglegt utanumhald unglinga- og ungmennastarfs styrkt, þar á meðal starfsemi Arnardals og Hvíta hússins. Ráðið leggur til að unnið verði áfram að útfærslu stöðunnar innan gildandi fjárhagsáætlunar og að skipurit og launaáætlun verði tekin til endurskoðunar við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027. Sviðsstjóra er falið að vinna málið áfram í samstarfi við forstöðumann Þorpsins og verkefnastjóra frístunda- og forvarnarmála. Forstöðumaður Þorpsins og verkefnastjóri frístunda- og forvarnarmála víkja af fundi. |
|
6. 2601-0028 - Framhaldsmál - ÍA - rekstur. samskipti og samningur 2026 Vinna við endurskoðun á þjónustusamningi milli Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness. Heiðar Mar Björnsson framkvæmdastjóri ÍA og Daníel S. Glad forstöðumaður íþróttamannvirkja sitja þennan dagskrárlið. Sjötti fundur um endurskoðun á þjónustusamningi Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness. |





