Skóla- og frístundaráð
|
1. 2602-1686 - Akranes - Barnvænt Sveitarfélag Viðurkenningin sem Barnvænt sveitarfélag gildir í þrjú ár en til að viðhalda viðurkenningunni þurfa sveitarfélög að halda innleiðingunni áfram, setja sér ný markmið og óska eftir nýju mati að þremur árum liðnum. Vinna við næsta innleiðingarhring hjá Akraneskaupstað er hafin og kynnir verkefnastjóri farsæls frístundastarfs stöðu málsins. Skóla- og frístundaráð þakkar fyrir yfirferðina og fagnar því að vinna sé hafin til að viðhalda viðurkenningu Akraneskaupstaðar sem Barnvænt sveitarfélag. Verkefnastjóri farsæls frístundastarfs yfirgefur fundinn.
|
|
2. 2601-0028 - Framhaldsmál - ÍA - rekstur. samskipti og samningur 2026 Vinna við endurskoðun á þjónustusamningi milli Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness. Fimmti fundur um endurskoðun á þjónustusamningi Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness.
|
|
3. 2603-2697 - Reglur Akraneskaupstaðar um skólaakstur í grunnskóla Í samræmi við lög um grunnskóla er það á ábyrgð sveitarfélaga að nemendur komist í skóla á öruggan og viðunandi hátt og getur skólaakstur verið liður í að tryggja slíkt. Hvert sveitarfélag setur sér reglur og viðmið um skólaakstur sem byggja á reglugerð nr. 656/2009. Samkvæmt þeim reglum sem hér eru lagðar fram til afgreiðslu, er gert ráð fyrir að skólaakstur á Akranesi sé með tvennum hætti; með gjaldfrjálsum almenningsvögnum eða með sérstökum greiðslum til foreldra fyrir eigin akstur að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Miðað er við að fjarlægð frá heimili að hverfisskóla sé að lágmarki 2 kílómetrar (radíus), að leiðin falli utan almenningssamgöngukerfis sveitarfélagsins og að ekki sé fyrir hendi örugg gönguleið frá heimili að skóla. Uppfylla þarf öll skilyrði til að eiga rétt á greiðslum. Skóla- og frístundaráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu hjá bæjarráði.
|
|
4. 2602-1601 - Ungmennasjóður Akraneskaupstaðar I Erindi á bæjarstjórnarfundi unga fólksins Erindi frá bæjarstjórnarfundi unga fólksins um stofnun Ungmennasjóðs. Skóla- og frístundaráð tekjur jákvætt í erindið og er áfram um að ungmennasjóður verði að veruleika. Sviðsstjóra er falið að vinna málið áfram í samstarfi við ungmennaráð.
|
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





