Fara í efni  

Skóla- og frístundaráð

281. fundur 26. mars 2026 kl. 16:00 - 19:00 Lindin, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Jónína Margrét Sigmundsdóttir formaður
  • Liv Aase Skarstad varaformaður
  • Þórður Guðjónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Dagný Hauksdóttir
  • Maren Ósk Elíasdóttir
Fundargerð ritaði: Maren Ósk Elíasdóttir verkefnastjóri

1. 2505-1611 : Breytingar á verklagsreglum leikskóla

Sviðsstjóri leggur fram tillögu um breytingu á ákvæði 3.6. í verklagsreglum um starfsemi leikskóla. Áheyrnarfulltrúar leikskóla, þau Íris G. Sigurðardóttir leikskólastjóri á Teigaseli og Hjörvar Gunnarsson fulltrúi foreldra sitja fundinn undir dagskrárliðum 1 og 2.

Skóla- og frístundaráð samþykkir breytingartillöguna sem tekur til niðurfellingar fæðis- og dvalargjalda þegar foreldrar skrá börn í sumarleyfi samfelld í 5 vikur eða lengur, í tengslum við sumarlokun leikskólana. Áður var aðeins hægt að fá gjöld felld niður fyrir eina viku umfram sumarlokunartímann. Málinu er vísað til afgreiðslu hjá bæjarráði.

2. 2602-1558 : Innritun í leikskóla skólaárið 2026-2027

Innritun í leikskóla Akranes skólaárið 2026-2027.

Með vísan í reglur um innritun í leikskóla á Akranesi hefur skóla- og frístundaráð ákveðið viðmiðunaraldur yngstu barna við innritun í leikskóla haustið 2026. Foreldrar barna fædd til og með 31.maí 2025 geta sótt um fyrir börn sín og verður þeim úthlutað leikskólaplássi fyrir næsta skólaár.

Íris Guðrún Sigurðardóttir og Hjörvar Gunnarsson víkja af fundi.

3. 2602-1207 : Reglur um innritun í grunnskóla Akraneskaupstaðar

Skóla- og frístundaráð hefur unnið að breytingum á reglum um innritun í grunnskóla. Reglurnar gilda um umsóknir og innritun barna í grunnskóla Akraneskaupstaðar, flutning nemenda milli grunnskóla innan sveitarfélagsins og námsvist barna utan lögheimilissveitarfélags. Markmið reglnanna er að tryggja jafnræði, gagnsæi og skilvirka stjórnsýslu í samræmi við lög um grunnskóla nr. 91/2008. Reglur þessar munu koma í stað reglna um innritun skólabarna, skólahverfi og flutning milli skóla frá árinu 2003.

Áheyrnafulltrúar Grundaskóla; Sigurður Arnar Sigurðsson skólastjóri, Hrafnhildur Jónsdóttir fulltrúi kennara sitja fundinn undir dagskrárliðum 3-5.

Skóla- og frístundaráð samþykkir breytingar á reglum um innritun í grunnskóla Akraneskaupstaðar og vísar þeim til afgreiðslu hjá bæjarstjórn.

4. 2603-2095 : Aðgengi almennings að búningsklefum sundlaugarinnar á Jaðarsbökkum

Skóla- og frístundaráði barst undirskriftalisti baðgesta við sundlaugina á Jaðarsbökkum. Forsaga máls er að frá upphafi skólaárs 2025-2026 hefur almenningur nýtt aðra klefaaðstöðu en skólabörn á meðan á skólasundi stendur. Aðilar sem stóðu að undirskriftasöfnun óska eftir því að aðgengi að búningsklefum Jaðarsbakkalaugar verði endurskoðað.

Daníel Sigurðsson Glad forstöðumaður íþróttamannvirkja Akraneskaupstaðar situr fundinn undir dagskrárliðum 3-6.

Ákvörðun um að takmarka aðgengi almennings að hefðbundnum búningsklefum á starfstíma skóla, meðan sundkennsla fer fram, var tekin í upphafi skólaárs að undangengnu samráði við skólasamfélagið. Markmiðið er að tryggja öryggi, persónuvernd og friðhelgi nemenda á skólatíma og í kennslustundum. Með breytingum á aðstöðu í íþróttamiðstöðinni skapaðist svigrúm til að koma til móts við ábendingar og óskir frá skólasamfélagi Grundaskóla um skýrari aðgreiningu milli skólasunds og almennrar notkunar búningsklefa sundlaugarinnar á kennslutíma. 

Er það mat skóla- og frístundaráðs að ákvörðunin hafi verið tekin af ábyrgð og með hagsmuni barna að leiðarljósi enda bera skólar og sveitarfélög ríka lagalega ábyrgð á því að haga kennslu og námsumhverfi þannig að nemendur finni til öryggis. Tilfærsla og nýting búningsklefa í íþróttamannvirkjum er ekki pólitísk ákvörðun, fremur en aðrar ákvarðanir sem stjórnendur skóla og stofnana Akraneskaupstaðar taka í daglegum rekstri. 

Áréttað er að sundlaugin er áfram opin almenningi á skólatíma og hefur því ekki verið farin sú leið að loka henni á meðan kennsla fer fram. Sú ákvörðun, að halda lauginni opinni, er meðvituð og endurspeglar skýran vilja til að viðhalda þjónustu við almenning. 

Kjörnir fulltrúar leggja áherslu á að treysta fagfólki til ákvarðanatöku sem þjónar heildarhagsmunum samfélagsins. Jafnframt er mikilvægt að leita áfram leiða til að lágmarka þau óþægindi sem breytingarnar kunna að valda, sérstaklega fyrir eldra fólk. 

Velferð barna í skólastarfi er ekki samningsatriði. Sem Barnvænt samfélag ber Akraneskaupstaður að setja hagsmuni barna í forgang eins og jafnframt er áréttað í erindi umboðsmanns barna til bæjarins. 

Núverandi aðstaða í íþróttamiðstöðinni er þröng og unnið er að því að skoða úrbætur með það að markmiði að bæta aðgengi almennings samhliða því að tryggja áfram velferð og öryggi barna í sundkennslu, fyrir næsta skólaár.

5. 2603-2110 - Öryggi nemenda og sundkennsla

Bréf til bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar frá umboðsmanni barna í kjölfar fundar með nemendaráði Grundaskóla vegna erindis frá nemendum. Erindið varðaði skólasund í Jaðarsbakkalaug og óskuðu nemendur eftir stuðningi og leiðsögn umboðsmanns barna, m.a. við að koma skoðunum þeirra á framfæri varðandi skólasund.

Skóla- og frístundaráð þakkar umboðsmanni fyrir bréfið og fyrir að veita nemendum áheyrn og liðsinni í málefni sem varðar hagsmuni þeirra. Nemendurnir fengu mikið hrós fyrir yfirvegaða og málefnalega umræðu og voru bæði skóla sínum og bæjarfélaginu til mikils sóma.

Sigurður Arnar Sigurðsson skólastjóri og Hrafnhildur Jónsdóttir fulltrúi kennara víkja af fundi.

6. 2602-1702 - Beiðni um endurskoðun samninga - Golfklúbburinn Leynir

Sameiginlegur dagskrárliður skóla- og frístundaráðs og bæjarráðs. Daníel Sigurðsson Glad forstöðumaður íþróttamannvirkja, Rakel Óskarsdóttir framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis, Hróðmar Halldórsson formaður og Óli B. Jónsson varaformaður Golfklúbbsins Leynis sitja þennan dagskrárlið.

Skóla- og frístundaráð og bæjarráð lýsa yfir vilja til að vinna markvisst að mótun framtíðarstækkunar Garðavallar í samstarfi við Golfklúbbinn Leyni og undirrita yfirlýsingu þess efnis. Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs er falið, í samráði við skipulags- og umhverfisráð, að skipa vinnuhóp um verkefnið. Í vinnuhópnum eigi sæti fulltrúi frá skipulags- og umhverfissviði, fulltrúi frá Leyni, hönnuður fyrir hönd Akraneskaupstaðar og hönnuður GL. Hlutverk hópsins er að móta og skila hugmyndum og tillögum að áfangaskiptri framtíðarstækkun golfvallarins.

Rakel Óskarsdóttir framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis, Hróðmar Halldórsson formaður og Óli B. Jónsson varaformaður Golfklúbbsins Leynis víkja af fundi

7. 2601-0028 : Framhaldsmál - ÍA - rekstur. samskipti og samningur 2026

Vinna við endurskoðun á þjónustusamningi milli Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness.

Fjórði fundur um endurskoðun á þjónustusamningi Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness.

Daníel Sigurðsson Glad forstöðumaður íþróttamannvirkja víkur af fundi.

8. 2512-5184 : Framhaldsmál - Menningarstefna Akraness undirbúningsvinna 2023

Menningar- og safnanefnd Akraneskaupstaðar samþykkti drög að uppfærðri menningarstefnu kaupstaðarins og vísar henni til umfjöllunar hjá skóla- og frístundaráði. Vera Líndal Guðnadóttir verkefnisstjóri menningar- og safnamála fylgir málinu eftir.

Skóla- og frístundaráð þakkar verkefnastjóra fyrir góða yfirferð á vandaðri menningarstefnu og samþykkir stefnuna fyrir sitt leyti.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu