Skóla- og frístundaráð
|
1. 2602-1702 : Beiðni um endurskoðun samninga - Golfklúbburinn Leynir Rakel Óskarsdóttir framkvæmdastjóri Leynis, Hróðmar Halldórsson formaður stjórnar Leynis og Óli B. Jónsson varaformaður stjórnar Leynis fylgja eftir beiðni Golfklúbbsins Leynis (GL) um endurskoðun á samningum sem í gildi eru á milli golfklúbbsins og Akraneskaupstaðar. Daníel Sigurðsson Glad forstöðumaður íþróttamannvirkja og Heiðar Mar Björnsson framkvæmdastjóri ÍA dagskrárliði 1-3. Skóla- og frístundaráð þakkar fyrir erindið og gott samtal við forsvarsfólk Golfklúbbsins Leynis. Ráðið vísar málinu til umfjöllunar í bæjarráði. Skóla- og frístundaráð og bæjarráð munu vinna málið áfram í sameiningu. Rakel Óskarsdóttir, Hróðmar Halldórsson og Óli B. Jónsson víkja af fundi.
|
|
2. 2602-1785 : Körfuknattleiksfélag ÍA - Beiðni um rekstrarsamning vegna íþróttahúss á Jaðarsbökkum Birkir Guðjónsson formaður Körfuknattleiksfélags ÍA og Ómar Helgason gjaldkeri félagsins fylgja eftir erindi frá Körfuknattleiksfélagi ÍA þar sem óskað er eftir rekstrarsamningi vegna íþróttahússins á Jaðarsbökkum. Samningurinn myndi fela í sér þrif og umsjón með húsinu frá kl. 14:00 á virkum dögum til kl. 22:00, sem og um helgar. Skóla- og frístundaráð þakkar Birki og Ómari fyrir góða yfirferð og gagnlegt samtal. Sviðsstjóra er falið að vinna málið áfram í samráði við forstöðumann íþróttamannvirkja. Ráðinu þykir mikilvægt að fram komi að stöðugildum í íþróttamiðstöðinni hafi ekki verið fjölgað í kjölfar opnunar nýs íþróttahúss á Jaðarsbökkum, heldur hafi einungis verið um tilfærslu starfa að ræða þegar starfsemin fluttist úr bragganum í nýja íþróttahúsið. Dagvinnustarfsfólk er við störf á þeim tíma sem kennsla fer fram í húsinu. Birkir Guðjónsson og Ómar Helgason víkja af fundi.
|
|
3. 2601-0028 : Framhaldsmál - ÍA - rekstur. samskipti og samningur 2026 Vinna við endurskoðun á þjónustusamningi milli Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness. Þriðji fundur um endurskoðun á þjónustusamningi Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness. Daníel Sigurðsson Glad og Heiðar Mar Björnsson víkja af fundi.
|
|
4. 2602-1314 : Vinnuskóli - tillögur til vinnuhóps í kjölfar samantektar á störfum og stöðu vinnuskólans 2025 Umræða um tillögur vinnuhóps að breytingum á Vinnuskóla Akraness. Sviðsstjóra er falið að vinna verkefnið áfram í samráði við verkefnastjóra forvarna- og frístundamála og garðyrkjustjóra. Endanleg afgreiðsla málsins fer fram hjá skipulags- og umhverfisráði.
|
|
5. 2602-1558 : Innritun í leikskóla skólaárið 2026-2027 Innritun í leikskóla á Akranesi fyrir starfsárið 2026-2027. Verkefnastjóri fer yfir stöðu innritunar á leikskólum Akraneskaupstaðar haustið 2026. Afgreiðslu málsins frestað til næsta fundar ráðsins.
|
|
6. 2512-5204 : Framhaldsmál - Frístundaheimili Akraneskaupstaðar - framtíðarsýn Framtíðarsýn frístundaheimila Akraneskaupstaðar - staða á tilraunarverkefni. Sviðsstjóri fer yfir stöðu verkefnisins og leggur til að skýrsla um niðurstöður tilraunarverkefnisins verði lögð fyrir fund ráðsins í apríl. |
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





