Skóla- og frístundaráð
|
1. 2602-1574 - Akrafjall Ultra og 8x8 paraþrekmót Samtal við skóla- og frístundaráð um Akrafjall Ultra sem fram fer á Akranesi 16. maí n.k. og 8x8 paraþrekmót sem fram fer í mars. Sigurjón Ernir Sturluson eigandi Ultraform situr þennan fundarlið. Skóla- og frístundaráð þakkar Sigurjóni Erni Sturlusyni fyrir samtalið og fagnar þeirri góðu velgengni sem Akrafjalls Ultra hefur notið síðustu tvö ár. Ráðið vill jafnframt benda á nýjan og spennandi viðburð, 8x8 paraþrekmót, sem Ultraform stendur fyrir í Akraneshöll 28. mars næstkomandi. Skóla- og frístundaráð tekur jákvætt í erindi Ultraform um samstarf og er sviðsstjóra falið að vinna málið áfram í samráði við verkefnastjóra menningarmála. Sigurjón Ernir Sturluson víkur af fundi |
|
2. 2602-1314 - Vinnuskóli - tillögur til vinnuhóps í kjölfar samantektar á störfum og stöðu vinnuskólans 2025 Sameiginlegur dagskrárliður skóla- og frístundaráðs og skipulags- og umhverfisráðs um tillögur vinnuhóps í tengslum við breytingar á Vinnuskóla Akraness. Farið er yfir niðurstöður vinnuhóps um vinnuskólann 2026. Sviðsstjórum mennta- og menningarsviðs og skipulags- og umhverfissviðs er falið að vinna málið áfram í samráði við garðyrkjustjóra og verkefnastjóra frístunda- og forvarnarmála. Jón Arnar Sverrisson og Jón Hjörvar Valgarðsson víkja af fundi. |
|
3. 2512-5159 - Endurskoðun Deiliskipulag Ægisbrautar - Undirbúningur Sameiginlegur dagskrárliður skóla- og frístundaráðs og skipulags- og umhverfisráðs. Halla Marta Árnadóttir skipulagsfulltrúi fer yfir undirbúning fyrir frumhönnun á nýjum leikskóla og nýju deiliskipulagi Ægisbrautar, skv. Aðalskipulagi Akraness 2021-2033. Skóla- og frístundaráð þakkar fyrir yfirferðina og gott samtal. |
|
4. 2601-0034 - Leikskólamál - Valkostagreining 2025 Sameiginlegur dagskrárliður skóla- og frístundaráðs og skipulags- og umhverfisráðs. Sviðsstjóri mennta- og menningarsviðs fer yfir valkostagreiningu um uppbyggingu og framtíðarþörf leikskólahúsnæðis á Akranesi 2026 - 2030. Sviðstjóra mennta- og menningarsviðs er falið að vinna málið áfram í samstarfi við verkefnastjóra framkvæmda. Niðurstöður greiningar gera ráð fyrir fjölgun leikskóladeilda árið 2027 skv. fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar. Skipulagsfulltrúi mun hefja vinnu við breytingu á skipulagi við leikskólann Akrasel. |
|
5. 2602-1449 - Jaðarsbakkar klefar íþróttahúss - Skilrúm og augnskanni Sameiginlegur dagskráliður skóla- og frístundaráðs og skipulags- og umhverfisráðs. Erindi frá forstöðumanni íþróttamála- og íþróttamannvirkja og framkvæmdarstjóra ÍA varðandi skipulag og nýtingu á búningsklefum í nýja íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum. Daníel S. Glad forstöðumaður íþróttamannvirkja og Heiðar Mar Björnsson framkvæmdastjóri ÍA sitja fundinn undir dagskrárliðum 5 og 6. Málinu er vísað til umfjöllunar hjá bæjarráði. |
|
6. 2601-0831 - Íþróttamiðstöðin Jaðarsbökkum - endurbætur á aðstöðu Sameiginlegur dagskráliður skóla- og frístundaráðs og skipulags- og umhverfisráðs. Forstöðumaður íþróttamannvirkja óskar eftir að skoðaðir verði möguleikar á endurbótum í sameiginlegum rýmum íþróttamiðstöðvarinnar á Jaðarsbökkum s.s. búningsklefum, afgreiðslu og aðgengi að sundlaug í kjölfar fjölgunar gesta á svæðinu. Skipulags- og umhverfisráð og skóla- og frístundaráð hafa veitt verkefnastjóra mannvirkja og forstöðumanni Íþróttamannvirkja umboð til að framkvæma kostnaðarmat og móta frekar breytingartillögur. |
|
7. 2602-1575 - Hljóðkerfi fyrir Akranesvöll KFÍA endurnýjar beiðni sína um að Akraneskaupstaður kaupi nýtt hljóðkerfi fyrir Akranesvöll. Skóla- og frístundaráð tekur jákvætt í erindið og vísar málinu til umfjöllunar hjá bæjarráði. Ráðið leggur til að fjárfest verði í færanlegu hljóðkerfi sem nýst getur Akranesvelli og öllu Jaðarsbakkasvæðinu. Hljóðkerfið verði hluti af almennum búnaði íþróttamiðstöðvarinnar og á forræði forstöðumanns íþróttamála- og íþróttamannvirkja. |
|
8. 2602-1550 - Erindi frá Lyftingarsambandi Íslands vegna Smáþjóðamóts í ólympískum lyftingum Lyftingasamband Íslands stendur fyrir Smáþjóðamóti í ólympískum lyftingum sem fram fer þann 14. mars í íþróttahúsinu á Vesturgötu ásamt Íslandsmóti í ólympískum lyftingum unglinga þann 15. mars næstkomandi. Óskað er eftir aðkomu bæjarins að hluta af þeim kostnaði sem fellur til vegna mótahaldsins. Skóla- og frístundaráð fagnar því að Smáþjóðamót í ólympískum lyftingum fari fram á Akranesi og telur slíkan viðburð vera góða viðbót við íþróttalíf bæjarins. Ráðið leggur til við bæjarráð að keppendum og fylgdarliði þeirra verði boðinn gjaldfrjáls aðgangur að Jaðarsbakkalaug og Guðlaugu á mótsdegi. Jafnframt yrði framlag Akraneskaupstaðar fólgið í niðurfellingu leigugjalda af íþróttahúsinu á Vesturgötu auk aðstoðar við kynningar- og markaðsmál á miðlum bæjarins, sé þess óskað. |
|
9. 2602-1558 - Innritun í leikskóla 2026 Um miðjan mars fer fram innritun í leikskóla á Akranesi fyrir starfsárið 2026-2027. Verkefnastjóri fer yfir stöðu innritunar á leikskólum Akraneskaupstaðar haustið 2026.Afgreiðslu málsins frestað til næsta fundar ráðsins.
|
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





