Fara í efni  

Skóla- og frístundaráð

278. fundur 04. febrúar 2026 kl. 08:15 - 11:15 í Klöpp
Nefndarmenn
  • Jónína Margrét Sigmundsdóttir formaður
  • Liv Aase Skarstad varaformaður
  • Þórður Guðjónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Dagný Hauksdóttir
  • Maren Ósk Elíasdóttir
Fundargerð ritaði: Maren Ósk Elíasdóttir verkefnastjóri

1. 2602-1205 - 80 ára afmæli Íþróttabandalags Akraness

Þann 3. febrúar fagnar Íþróttabandalag Akraness 80 ára afmæli. Af því tilefni óskar forsvarsfólk ÍA eftir samstarfi við Akraneskaupstað um að halda upp á tímamótin með viðeigandi hætti.

 

Heiðar Mar Björnsson framkvæmdastjóri ÍA og Daníel S. Glad forstöðumaður íþróttamannvirkja sitja dagskrárliði 1-4.

Skóla- og frístundaráð tekur jákvætt í erindið og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram í samráði við Íþróttabandalag Akraness og verkefnastjóra menningar- og safnamála. Ráðið vill jafnframt færa Íþróttabandalagi Akraness afmæliskveðju og þakka fyrir ómetanlegt framlag þess til samfélagsins á Akranesi. ÍA hefur í áratugi verið kjarninn í öflugu íþrótta- og æskulýðsstarfi bæjarins og verið mikilvægur sendiherra Akraness innanlands sem utan. ÍA er í dag eitt stærsta íþróttbandalag landsins en því tilheyra 19 aðildarfélög sem bjóða upp á skipulagt íþróttastarf í 22 greinum. Samstarf Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness hefur ávallt verið öflugt og farsælt og er lykilþáttur í áframhaldandi uppbyggingu íþrótta- og frístundastarfs í bænum. Skóla- og frístundaráð óskar Íþróttabandalagi Akraness og Akurnesingum öllum innilega til hamingju með 80 ára afmælið.

2. 2601-0028 - ÍA - rekstur. samskipti og samningur 2026

Vinna við endurskoðun á þjónustusamningi milli Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness.

Annar fundur um endurskoðun á þjónustusamningi Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness.

3. 2601-1001 - Sumarnámskeið á Akranesi 2026

Kynning á niðurstöðum foreldrakönnunar í tengslum við sumarnámskeið fyrir börn í 1.-4. bekk 2026.

Heiðrún Janusardóttir verkefnastjóri frístunda- og forvarnarmála, Guðrún Þórbjörg Sturlaugsdóttir verkefnastjóri farsæls frístundastarfs og Ívar Orri Kristjánsson forstöðumaður Þorpsins sitja fundarliði 3 og 4.

Ráðið þakkar Heiðrúnu og Guðrúnu Þórbjörgu fyrir góða kynningu og felur verkefnastjórum í samráði við framkvæmdastjóra ÍA og forstöðumanns Þorpsins að vinna verkefnið áfram.

4. 2602-1206 - Niðurstöður Barnaþings Akraness 2025

Niðurstöður Barnaþings Akraness sem haldið var í Þorpinu – Frístundamiðstöð dagana 11.-13.nóvember 2025. Þátttakendur á Barnaþinginu voru 144 börn úr 5.-10.bekk ásamt riturum úr FVA og fulltrúum ungmennaráðs. Niðurstöður verða nýttar í vinnu ungmennaráðs fyrir Bæjarstjórnarfund unga fólksins 17.febrúar nk.

Elsa Lára Arnardóttir skólastjóra Brekkubæjarskóla og Sigurður Arnar Sigurðsson skólastjóra Grundaskóla sitja dagskrárliði 4-6 ásamt G. Ernu Valentínusdóttur áheyrnarfulltrúa foreldra, Guðrúnu Hjörleifsdóttur og Hrafnhildi Jónsdóttur fulltrúum kennara.

Ívar Orri Kristjánsson forstöðumaður Frístundamiðstöðvarinnar Þorpsins og starfsmaður ungmennaráðs fylgir málinu eftir. Skóla- og frístundaráð þakkar góða yfirferð og lýsir ánægju með það mikilvæga starf sem ungmennaráð vinnur við að koma á framfæri sjónarmiðum og röddum barna og ungmenna á Akranesi um þau málefni sem þau telja skipta máli.

Daníel S. Glad, Heiðar Mar Björnsson, Guðrún Þórbjörg Sturlaugsdóttir, Heiðrún Janusardóttir og Ívari Orra Kristjánssyni forstöðumaður Þorpsins víkja af fundi.

5. 2602-1204 - Skóladagatal 2026-2027

Skóladagatal grunnskólanna fyrir skólaárið 2026-2027 lagt fram til staðfestingar. Áheyrnarfulltrúar grunnskólanna sitja áfram fundinn undir þessum lið.

Skóla- og frístundaráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að skóladagatali fyrir skólaári 2026-2027.

6. 2602-1207 - Reglur um innritun í grunnskóla Akraneskaupstaðar

Á fundi skóla- og frístundaráðs 21. mars 2025 lagði sviðsstjóri til við ráðið að Reglur um innritun í grunnskóla Akraneskaupstaðar frá árinu 2003 verði teknar til endurskoðunar og að sú vinna fari fram samhliða innleiðingu á Nemendagrunni Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Gert er ráð fyrir að innritun barna í grunnskóla og flutningur nemenda milli skóla fari í gegnum Ísland.is. Fyrstu drög að reglum lögð fram.

Tillaga að endurskoðuðum reglum um innritun nemenda í grunnskóla Akraneskaupstaðar lagðar fram til kynningar.

Áheyrnarfulltrúar grunnskólanna; Elsa Lára Arnardóttir, Sigurður Arnar Sigurðsson, G. Erna Valentínusdóttir, Guðrún Hjörleifsdóttir og Hrafnhildur Jónsdóttir víkja af fundi.

7. 2601-0265 - Húsnæðisáætlun 2026

Á fundi bæjarstjórnar 27. janúar s.l. gerði forseti grein fyrir því að húsnæðisáætlunin hafi ekki farið til umfjöllunar í öllum fagráðum og gerði þá málsmeðferðartillögu að áætlunin fari til umfjöllunar og afgreiðslu í fagráðum og svo fyrir vinnufund bæjarstjórnar. Húsnæðisáætlunin er lögð hér fram.

Húsnæðisáætlun 2026 lög fram til kynningar.

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu