Skóla- og frístundaráð
1. 2601-0828 - Foreldrafélög grunnskólanna - reglubundið samráð við skóla- og frístundaráðs
2026
Reglubundið samtal fulltrúa foreldrafélaga grunnskólanna og skóla- og frístundaráðs. Anna María
Þórðardóttir, Kristín Minney Pétursdóttir, G. Erna Valentínusardóttir og Ragnheiður Rún Gísladóttir
sitja fundinn fyrir hönd foreldrafélaga grunnskólanna.
Skóla- og frístundaráð þakkar fyrir málefnalegar og gagnlegar umræður þar sem m.a. kom fram
áhugi foreldra á að boðið verði upp á kvöldopnun Arnardals hluta sumars og lögð var áhersla á
mikilvægi þess að ljúka endurbótum á skólalóðum grunnskólanna í kjölfar þeirra framkvæmda sem
nú standa yfir eða eru að ljúka.
Áheyrnarfulltrúar foreldra grunnskólanna víkja af fundi.
Í úrvinnslu
2. 2601-0265 - Húsnæðisáætlun 2026
Húsnæðisáætlun 2026 til kynningar.
Lagt fram.
3. 2601-0832 - Beiðni Brekkubæjarskóla um kaup á hljóðkerfi í sal skólans
Stjórnendur Brekkubæjarskóla óska eftir fjármagni til kaupa á nýju hljóðkerfi í endurbættan sal
skólans.
Skóla- og frístundaráð tekur jákvætt í erindi Brekkubæjarskóla og vísar málinu til afgreiðslu hjá
bæjarráði.
Vísað í bæjarráð
4. 2601-0831 - Íþróttamiðstöðin Jaðarsbökkum - endurbætur á aðstöðu
Forstöðumaður íþróttamannvirkja óskar eftir að skoðaðir verði möguleikar á endurbótum í
sameiginlegum rýmum íþróttamiðstöðvarinnar á Jaðarsbökkum s.s. búningsklefum, afgreiðslu og
aðgengi að sundlaug í kjölfar fjölgunar gesta á svæðinu. Daníel S. Glad forstöðumaður
íþróttamannvirkja og Heiðar Mar Björnsson framkvæmdarstjóra ÍA sitja undir dagskrárliðum 5-7.
Skóla- og frístundaráð lýsir stuðningi við tillögur forstöðumanns íþróttamannvirkja um bætta
aðstöðu í sameiginlegum rýmum í íþróttamiðstöðinni á Jaðarsbökkum. Málinu er vísað til
umfjöllunar hjá skipulags- og umhverfisráði og lagt til að fagráðin fjalli um það sameiginlegum
fundi.
Vísað til fagráða
5. 2601-0829 - Erindi frá Fimleikafélagi ÍA um aðgengi og öryggi í stúku í fimleikahúsi
Fimleikafélag ÍA óskar eftir því að sett verði upp handrið í stúkuna í fimleikahúsinu til að tryggja
betur aðgengi og öryggi.
Skóla- og frístundaráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til umræðu hjá skipulags- og
umhverfisráði. Sviðsstjóra falið að fylgja málinu eftir í samvinnu við forstöðumann
íþróttamannvirkja.
Vísað til fagráða
6. 2601-0830 - Beiðni Klifurfélags Akraness um kaup á dýnum
Klifurfélag óskar eftir aðkomu Akraneskaupstaðar við kaup á dýnum í nýja aðstöðu Klifurfélagsins í
íþróttahúsinu á Vesturgötu.
Kaup á dýnum rúmast ekki innan fjárheimilda íþróttamannvirkjanna og vísar skóla- og
frístundaráð því málinu til afgreiðslu hjá bæjarráði.
Vísað í bæjarráð
7. 2601-0028 - ÍA - rekstur. samskipti og samningur 2026
Vinna við endurskoðun á þjónustusamningi milli Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags
Akraness.
Fyrsti fundur um endurskoðun á þjónustusamningi Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags
Akraness.
Daníel Glad Sigurðsson forstöðumaður íþróttamannvirkja og Heiðar Mar Björnsson
framkvæmdastjóri ÍA víkja af fundi.
Í vinnslu
8. 2601-0503 - Þjóðarleikvangur í golfi - Áskorun til Akraneskaupstaðar
Skóla- og frístundaráð lýsir yfir skýrum vilja til áframhaldandi samtals við Golfsamband Íslands,
Golfklúbbinn Leyni og aðra hagsmunaaðila um að Garðavöllur á Akranesi verði þjóðarleikvangur
Íslands í golfi og leggur til við bæjarstjórn að undirrituð verði viljayfirlýsing þess efnis. Ráðið telur
slíkt styðja vel við áherslur Akraneskaupstaðar sem íþróttasveitarfélags og skapi tækifæri til
uppbyggingar í íþrótta- og heilsutengdri ferðaþjónustu. Skóla- og frístundaráð óskar eftir að
fulltrúar Golfklúbbsins Leynis og, eftir atvikum, Golfsambands Íslands sæki næsta fund ráðsins til
samtals um málið.
Í vinnslu
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafræn





