Skóla- og frístundaráð
Dagskrá
1.Árshlutauppgjör 2025
2505216
Kristjana Helga Ólafsdóttir fjármálastjóri kynnir árshlutauppgjör málaflokka skóla- og frístundasviðs, tímabilið janúar - mars 2025.
Skóla- og frístundaráð þakkar Kristjönu fyrir góða yfirferð.
Kristjana víkur af fundi.
2.Klifurfélag ÍA - húsnæði og starfsemi
2506017
Umfjöllun um framtíðarhúsnæði fyrir Klifurfélag Akraness. Markmið Akraneskaupstaðar er leitast við að starfsemi aðildarfélaga Íþróttabandalags Akraness geti farið fram í íþróttamannvirkjum kaupstaðarins.
Sturla M. Guðmundsson og Guðmundur Þ. Valsson fulltrúar Klifurfélags Akraness sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.
Sturla M. Guðmundsson og Guðmundur Þ. Valsson fulltrúar Klifurfélags Akraness sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.
Skóla- og frístundaráð felur sviðsstjóra og forstöðumanni íþróttamannvirkja að vinna málið áfram.
Sturla og Guðmundur víkja af fundi.
3.Þorpið eldhús
2505244
Erindi frá forstöðumanni Þorpsins og verkefnastjóra frístunda- og forvarnarmála um ástand á húsnæði Þorpsins, þá aðallega eldhúsi og stigahúsi.
Ívar Orri Kristjánsson forstöðumaður Þorpsins og Heiðrún Janusardóttir verkefnastjóri frístunda- og forvarnarmála fylgja málinu eftir.
Ívar Orri Kristjánsson forstöðumaður Þorpsins og Heiðrún Janusardóttir verkefnastjóri frístunda- og forvarnarmála fylgja málinu eftir.
Skóla- og frístundaráð leggur til að unnin verði kostnaðargreining á nauðsynlegum úrtbótum á eldhúsi Þorpsins í samstarfi við skipulags- og umhverfissvið. Ráðið felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.
Ívar Orri og Heiðrún víkja af fundi.
4.Greining KPMG á reiknilíkönum grunn- og leikskóla
2504001
Sviðsstjóri kynnir fyrir skóla- og frístundaráði fyrstu drög að greiningu KPMG á rekstri leik- og grunnskóla Akraneskaupstaðar.
Lagt fram.
5.Fjárhagsáætlun leikskóla 2025
2505130
Sviðsstjóri kynnir fyrir skóla- og frístundaráði fjölda og skiptingu stöðugilda í leikskólum Akraneskaupstaðar fyrir starfsárið 2025-2026.
Lagt fram.
6.Málefni leikskólastigsins 2025
2505167
Umfjöllun um fyrirkomulag skráningardaga í leikskólum Akraneskaupstaðar fyrir næsta starfsár 2025-2026.
Íris Sigurðardóttir áheyrnafulltrúi leikskólastjóra situr þennan fundarlið.
Íris Sigurðardóttir áheyrnafulltrúi leikskólastjóra situr þennan fundarlið.
Skóla- og frístundaráð er áfram um að halda inni 10 skráningardögum á næsta starfsári og felur sviðsstjóra og leikskólastjórum nánari útfærslu í takt við umræður fundarins.
Íris víkur af fundi.
7.Nýtt íþróttahús á Jaðarsbökkum - nýting
2406016
Knattspyrnufélag ÍA og Körfuknattleiksfélag ÍA leggja fram beiðni um að nýta hluta geymslurýmis í nýja íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum sem félagsrými fyrir aðildarfélög ÍA.
Ingimar Elí Hlynsson framkvæmdastjóri KFÍA, Birkir Guðjónsson formaður KÍA, Kjell Wormdal yfirþjálfari sundfélagsins og Anna María Þráinsdóttir verkefnastjóri á skipulags- og umhverfissviði sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.

Skóla- og frístundaráð felur sviðsstjóra að vinna málið áfram í samstarfi við skipulags- og umhverfissvið.
Fundi slitið - kl. 11:00.