Skóla- og frístundaráð
Dagskrá
1.Líkamsrækt á Jaðarsbökkum
2501063
Daníel S. Glad forstöðumaður íþróttamannvirkja leggur fram tillögu að dagsetningu lokunar á núverandi þrekaðstöðu að Jaðarsbökkum.
Afgreiðslu málsins er frestað til næsta fundar ráðsins.
Daníel víkur af fundi.
2.Fundir skóla- og frístundaráðs
2406257
Ákvörðun um fundi skóla- og fristundaráðs sumarið 2025.
Fundir skóla- og frístundaráðs sumarið 2025 verða; 4. júní, 20. júní, 6. ágúst og 20. ágúst.
3.Reglubundin yfirferð á verkefnaskrá
2505168
Sviðsstjóri fer yfir stöðu verkefna á sviðinu.
Skóla- og frístundaráð er ánægt með framgang verkefna á sviðinu og þakkar fyrir yfirferðina.
4.Barnvænt sveitarfélag - lokaskýrsla og viðurkenning
2505112
Sólveig Sigurðardóttir deildarstjóri farsældarþjónustu barna kynnir fyrir skóla- og frístundaráði lokaskýrslu Akraneskaupstaðar um innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í gegnum verkefnið Barnvæn sveitarfélög.
Akranes mun hljóta formlega viðurkenningu sem Barnvænt sveitarfélag þann 2. júní 2025.
Akranes mun hljóta formlega viðurkenningu sem Barnvænt sveitarfélag þann 2. júní 2025.
Skóla- og frístundaráð fagnar því að áfanginn sé í höfn og að Akranes verði formlega Barnvænt sveitafélag og færir þakkir til allra þeirra sem komið hafa að verkefninu með einum eða öðrum hætti.
Sólveig víkur af fundi.
5.Málefni leikskólastigsins 2025
2505167
Samtal skóla- og frístundaráðs við áheyrnarfulltrúa leikskóla um fyrirkomulag skráningardaga fyrir næsta starfsár og framtíðarþörf leikskólaplássa í sveitarfélaginu.
Íris G. Sigurðardóttir leikskólastjóri, Sylvía Hera Skúladóttir fulltrúi starfsfólks leikskóla og Hjörvar Gunnarsson fulltrúi foreldra sitja fundinn undir dagskrárliðum 5 og 6.
Íris G. Sigurðardóttir leikskólastjóri, Sylvía Hera Skúladóttir fulltrúi starfsfólks leikskóla og Hjörvar Gunnarsson fulltrúi foreldra sitja fundinn undir dagskrárliðum 5 og 6.
Skóla- og frístundaráð þakkar fyrir gott samtal. Málið verður tekið upp aftur á næsta fundi ráðsins.
Íris, Sylvía Hera og Hjörvar víkja af fundi.
6.Invest in play - Tengjumst í leik
2408055
Verkefnastjóri fer yfir framgang og árangur foreldranámskeiðanna Tengjumst í leik sem leikskólar Akraneskaupstaðar hafa boðið upp á í vetur.
Fyrstu niðurstöður benda til að foreldrar sem sitja námskeiðið upplifi minni streitu í foreldrahlutverkinu. Einnig benda niðurstöður til þess að það dragi úr krefjandi hegðun barna eftir að foreldrar sitja námskeiðið. Foreldrar eru ánægðir með námskeiðin og leikskólastarfsfólk líka.

Skóla- og frístundaráð þakkar fyrir góða kynningu og fagnar þeim marktæka árangri sem námskeiðin er að sýna. Hér er um að ræða öflugt forvarnarverkefni sem styður vel við áherslur Akraneskaupstaðar um farsæld barna og fjölskyldna.
Áheyrnarfulltrúar leikskóla víkja af fundi.
7.Verklagsreglur um starfsemi leikskóla- endurskoðun
2008109
Kynning á drögum að innra verklagi í tengslum við framkvæmd Verklagsreglna um starfsemi leikskóla Akraneskaupstaðar.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 11:00.