Fara í efni  

Skipulagsnefnd (2000-2002)

56. fundur 19. september 2000 kl. 13:00 - 15:30
56. fundur skipulagsnefndar Akraness haldinn í fundarsal bæjarskrifstofu Stillholti 16-18, þriðjudaginn 19. september 2000, kl. 13:00.

Mættir: Jóhannes Snorrason formaður,
Sigurlína Guðrún Júlíusdóttir,
Edda Agnarsdóttir,
Guðbjartur Hannesson,
Lárus Ársælsson,
Auk þeirra Skúli Lýðsson byggingar- og skipulagsfulltrúi og Hafdís Sigurþórsdóttir sem ritaði fundargerð.

1. Akratorgsreitur - deiliskipulag.
Bréf bæjarritara fyrir hönd bæjarráðs dags. 24. ágúst sl. þar sem skipulagsnefnd er falið að taka skipulag Akratorgsreits til endurskoðunar.
Skipulagsnefnd leggur til að við endurskoðun deiliskipulags Akratorgsreits verði gerð húsakönnun. Jafnframt verði tekin til umfjöllunar framkomin erindi, stærðir á byggingareitum, hæðir húsa og umferðarmál þar með talin bílastæðamál innan Akratorgsreits í heild. Byggingar- og skipulagsfulltrúa og formanni nefndarinnar falið að gera tillögu að vali á ráðgjafa til verksins.

2. Flatahverfi - deiliskipulag.
Deiliskipulag sem auglýst var samkvæmt 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Tillagan var auglýst frá og með 26. júlí sl. til og með 24. ágúst 2000, athugasemdafrestur var til 7. sept. 2000. Athugasemdir bárust frá eftirfarandi aðilum:
Erni Gunnarssyni hdl. fyrir hönd Ármanns Gunnarssonar, Steinsstöðum.
Gyðu Bentsdóttur, Flemming R Madsen Klapparholti og Elsu Sigurðardóttur, Stefáni Lárusi Pálssyni Garðholti.
Halldóri Stefánssyni, Jörundarholti 121.
Athugasemdir frá Erni Gunnarssyni hdl. fyrir hönd Ármanns Gunnarssonar við deiliskipulag fyrir Flatahverfi:
?F.h. umbjóðanda míns Ármanns Gunnarssonar, kt. 010137-2339, Steinsstöðum, Akranesi geri ég eftirfarandi athugasemdir við deiliskipulag það sem auglýst hefur verið fyrir Flatahverfi á Akranesi. Í ofangreindu deiliskipulagi er skipulagt landsvæði, sem að talsverðum hluta lítur umráðum umbjóðanda míns, ýmist samkvæmt beinum eignarétti eða samkvæmt erfðafestu. Þau landsvæði sem um ræðir eru m.a. Steinsstaðir efri og neðri hæð, Garðaland 21, Garðaland 30 og útihús að Steinsstöðum. Að mati umbjóðanda míns er landi því er lítur umráðum hans ekki rétt lýst í þeim gögnum sem fylgja auglýstu deiliskipulagi og áskilur hann sér því allan rétt til þess að koma að frekari athugasemdum, sem og rétt til þess að krefjast skaðabóta fari svo að réttindi þau er hann á yfir ofangreindu landi verði á einhvern hátt takmörkuð.?

Athugasemdir frá Gyðu Bentsdóttur, Flemming R Madsen, Elsu Sigurðardóttur og Stefáni Lárusi Pálssyni:
?Við, undirrituð, eigendur að íbúðarhúsunum Garðholti og Klapparholti, viljum koma nokkrum athugasemdum á framfæri vegna deiliskipulags klasa 3 í Flatahverfi. Þegar við keyptum húsin okkar var það fyrst og fremst vegna staðsetningar þeirra og nálægðar við óræktað land í útjaðri bæjarins. Fuglalíf er mikið í flóanum í kringum húsin og útsýni óhindrað til Akrafjallsins og Esjunnar. Með deiliskipulagi Flatahverfisins hverfur allt ofangreint að því er okkur sýnist. Í staðinn mun á næstu árum ríkja hér vélahávaði, jarðrask og önnur óþægindi. Það hefur verið lögð mikil vinna í að gera húsin upp að utan sem innan og hér líður okkur vel. Nú sjáum við fyrir okkur að örfáum metrum (ca. 20m.) suðaustan við húsin okkar muni ef til vill rísa allt að 5 hæða íbúðablokk! Þar með hverfur Akrafjallið og Esjan sjónum okkar, sólin mun vart ná að skína fyrr en síðla dags og margra manna byggð er skyndilega risin þar sem kartöflugarðurinn var áður. Við viljum því gjarnan fá svar við því, hvort nálægð áætlaðs byggingareits fyrir blokkina í klasa 3 stenst byggingarreglugerð, þ.e.hvort svo háa blokk megi reisa jafn nálægt húsum okkar og teikningarnar gefa til kynna. Alla vega mun verðmæti eigna okkar rýrna við slíka byggingu svo þétt upp að lóðum húsanna. Þegar lóðasamningarnir renna út (2004 og 2005) virðist okkur einnig gert ráð fyrir að lóðirnar eigi að breytast og jafnvel minnka og erum við hrædd um að verðgildi húsanna muni rýrna enn frekar. Það er engan veginn viðunandi og veltum við fyrir okkur hvort það sé í samræmi við lög. Það er að okkur þrengt á fleiri en einn hátt með deiliskipulaginu, við munum ekki njóta sama friðar og áður og líf okkar mun sæta verulegri röskun. Við erum ánægð með að það skuli þó víða í skipulagsvinnunni tekið tillit til eigna okkar. Hins vegar vekur það áhyggjur að annars staðar virðist gert ráð fyrir að húsin víki fyrir nýbyggingum, sbr. uppdrátt 002 bls. 18. Einnig viljum við benda á að ósamræmi virðist vera milla lóðarnúmera í töflu 4.2 bls. 10 og á uppdrætti 001 bls. 17. Vonum við að athugasemdir þessar veði teknar til greina og leggjum til að í stað hárrar íbúðarblokkar verði skipulögð lægri íbúðabyggð í klasa 3.?

Athugasemdir við deiliskipulag Flatahverfis frá Halldóri Stefánssyni:
?Undirritaður gerir athugasemd við grein 4.1 í ofangreindu skipulagi. En þar er kveðið á um að byggingar á samliggjandi fjölbýlishúsalóðum snertist. Þar er átt við fjölbýlishús á lóðum 2-10 í klasa 3. Ég geri athugasemd við þetta og tel galla þess eftirfarandi.
1. Þar sem byggingar verða að tengjast er einungis einum byggingaraðila gefið færi á að byggja fjölbýlishús í þessari atrennu.
2. Ég tel að skjólmyndun, af því húsi sem skipulagið tekur mið af, ofmetna. Tré og runnar eru vænlegri til skjólmyndunar.
3. Skipulagið segir í raun til um hvernig húsið á ofangreinda lóð eigi að líta út. Ég á við með því hvernig byggingareiturinn liggur í vinkil. Ég tel að deiliskipulag eigi ekki að ganga svo langt í því hvernig húsin eiga að líta út.
4. Kveðið er á um 3-5 hæða hús, því ekki að ganga eins langt og reglugerðir heimila og leyfa hærri byggingar.
5. Heimilt að byggja í áföngum. Mjög vafasamt ef tekið er tillit til þeirra íbúa sem koma til með að flytja fyrstir í fjölbýlishúsið.
Ég tel að í stað ofangreinds ætti að breyta lóðinni í 2-3 lóðir og þar væri heimilt að reisa allavega 6 hæða hús og þau væru að sjálfsögðu aðskilin. Leiksvæði fyrir börn gæti verið sameiginlegt og skjólmyndun væri náð fram með trjám og runnum.?

Byggingar- og skipulagsfulltrúa falið að láta vinna frekari gögn um lóðamörk núverandi lóða innan svæðisins. Lagt er til að skipulagshöfundar verði boðaðir á fund með nefndinni til að fara yfir byggingarskilmála með tilliti til framkominna athugasemda.

3. Jaðarsbraut - deiliskipulag.
Bréf Ormars Þórs Guðmundssonar dags. 11. ágúst 2000, varðandi skiptingu lóðarinnar nr. 2 við Garðabraut í tvær lóðir og nýbyggingu á nýrri lóð.
Skipulagsnefnd tekur jákvætt í framkomna hugmynd enda liggi fyrir fullt samkomulag lóðarhafa um skiptingu lóðarinnar.

4. Bréf, umferðarnefnd.
Bréf bæjarritara fyrir hönd bæjarstjórnar dags 5. sept. sl. varðandi breytingu á verkefnum skipulagsnefndar.
Lagt fram.

5. Bréf, umferðarmál.
Bréf bæjarritara fyrir hönd bæjarráðs dags. 14. sept. sl. þar sem samþykkt er að fela skipulagsnefnd og byggingar- og skipulagsfulltrúa að taka umferðarmerkingar og umferðarmannvirki til skoðunar og gera viðeigandi lagfæringar. Meðfylgjandi er bréf Ólafs Þ Haukssonar sýslumanns dags. 12. sept. 2000.
Lagt fram. Byggingar- og skipulagsfulltrúa falið að gera samantekt fyrir skipulagsnefnd á þeim málum sem hafa verið til umfjöllunnar varðandi umferðarmál.

6. Vogabraut 5.
Bréf Þóris Ólafssonar skólameistara fyrir hönd Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi dags. 5. sept. sl. varðandi aðkomu fyrir skólabíl Fjölbrautaskólans.
Lagt fram.

7. Eignarlóðir.
Minnisblað bæjarstjóra dags. 15. sept 2000.
Lagt fram.

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 15:30.
   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00