Fara í efni  

Skipulags- og umhverfisráð

366. fundur 16. nóvember 2026 kl. 08:15 - 10:00 Klöpp, Dalbraut 1
Nefndarmenn
  • Ragnar B. Sæmundsson formaður skipulags- og umhverfisráðs
  • Hrafn Ágúst Björnsson varaformaður skipulags- og umhverfisráðs
  • Viktor Elvar Viktorsson aðalmaður
  • Jón Guðni Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Anna Sólveig Smáradóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sigurður Páll Harðarson sviðstjóri
  • Arnór Már Guðmundsson verkefnastjóri
  • Alfreð Alfreðsson rekstrarstjóri
  • Gróa Dagmar Gunnarsdóttir fulltrúi skipulags- og umhverfis
Fundargerð ritaði: Gróa Dagmar Gunnarsdóttir fulltrúi skipulags- og umhverfis

1. 2601-0799 - Fasteignaviðhald 2026

Rekstrarstjóri og Verkefnastjóri framkvæmda kynna stöðu viðhaldsmála fyrir árið 2026.

Umhverfis- og skipulagsráð þakkar fyrir kynninguna.

 

2. 2610-8120 - Fasteignaviðhald 2027

Rekstrarstjóri og verfefnastjóri framkvæmda kynna viðhaldsáætlun fasteigna fyrir árið 2027.

Umhverfis- og skipulagsráð þakkar fyrir kynninguna.

 

4. 2611-8519 - Gjaldskrá skipulags- og umhverfissviðs og tengd þjónustugjöld fyrir 2027

Farið yfir helstu gjaldflokka í þjónustugjaldskrá.

Skipulags- og umhverfisráð felur sviðsstjóra frekari vinnslu málsins.

 

5. 2609-6414 - Umsókn til skipulagsfulltrúa - Skagabraut 31

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Arnardalsreits vegna Skagabrautar 31 sem grenndarkynnt var frá 12. október til 8. nóvember. Breytingin felst í að heimila tvær íbúðir í húsinu, afmarka byggingarreit um núverandi hús og svalir og gera grein fyrir bílastæðum innan lóðar. Engar athugasemdir bárust. Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að breyting á deiliskipulagi Arnardalsreits vegna Skagabrautar 31 verði samþykkt og birt í B-deild Stjórnartíðinda.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að breyting á deiliskipulagi Arnardalsreits vegna Skagabrautar 31 verði samþykkt samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Breytingin verði send Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun og gildistaka hennar auglýst í B-deild Stjórnartíðinda

 

6. 2609-6771 - Nýbygging: Jörundarholt 1B, 300 Akraneskaupstaður

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir bílskúr og tengibyggingu við Jörundarholt 1B. Umsóknin var grenndarkynnt frá 12. október til 8. nóvember samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Engar athugasemdir bárust.

Skipulags- og umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við breytta notkun samkvæmt framlögðum uppdrætti og vísar umsókninni til byggingarfulltrúa til afgreiðslu.

 

7. 2610-7244 - Breyting inni: Grenigrund 33, 300 Akraneskaupstaður

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi vegna breytingar á hluta bílskúrs við Grenigrund 33 í snyrtistofu. Umsóknin var grenndarkynnt frá 29. október til 13. nóvember 2026 samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Engar athugasemdir bárust. Kynningartíminn var styttur í samræmi við ákvæði 44. gr. laganna þar sem allir hagsmunaaðilar höfðu veitt skriflegt samþykki sitt.

Skipulags- og umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við breytta notkun samkvæmt framlögðum uppdrætti og vísar umsókninni til byggingarfulltrúa til afgreiðslu.

 

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu