Fara í efni  

Skipulags- og umhverfisráð

365. fundur 02. nóvember 2026 kl. 08:15 - 11:45 Klöpp, Dalbraut 1
Nefndarmenn
  • Ragnar B. Sæmundsson formaður skipulags- og umhverfisráðs
  • Hrafn Ágúst Björnsson varaformaður skipulags- og umhverfisráðs
  • Viktor Elvar Viktorsson aðalmaður
  • Jón Guðni Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Anna Sólveig Smáradóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sigurður Páll Harðarson sviðstjóri
  • Berglind Sigurðardóttir skipulagsfulltrúi
  • Lárus Ársælsson umhverfisstjóri
  • Arnór Már Guðmundsson verkefnastjóri
  • Gróa Dagmar Gunnarsdóttir fulltrúi skipulags- og umhverfis
Fundargerð ritaði: Gróa Dagmar Gunnarsdóttir fulltrúi skipulags- og umhverfis

1. 2610-8168 - Öryggi í knattspyrnumannvirkjum á Íslandi

Lagt er fram bréf frá KSÍ þar sem lagðar eru til breytingar á öryggsissvæðum í keppnis- og æfingahöllum fyrir knattspyrnu á Íslandi. Bréfið leggur til að öryggissvæði umhverfis völl sé útvíkkað úr 3m í 4 metra.

Lagt fram.

 

2. 2610-8286 - Jaðarsbakkar - Innilaug

Farið yfir mögulegar staðsetningar á innilaug á Jaðarsbökkum.

Skipulags- og umhverfisráð felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.

 

3. 2609-6807 - Vesturgata 62 - Sala

Til kynningar eru gögn vegna sölu á Vesturgötu 62.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir fyrirliggjandi sölugögn og vísar málinu til afgreiðslu í bæjarráði. Sölugögn skulu send til FSRE til yfirferðar.

 

4. 2610-8218 - Gjaldskrá sorphirðu - fyrir 2027

Setja skal gjaldskrá fyrir sorphirðu skv. lögum 55/2003.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir breytingar á gjaldskrá sem fela í sér um 12% lækkun á sorphirðugjöldum. Gjaldskránni vísað til bæjarstjórnar til endanlegrar staðfestingar.

 

5. 2609-7072 - Laun Vinnuskólans

Lögð er fram tillaga um hækkun á launum vinnuskólans (14-16 ára).

Skipulags- og umhverfisráð tekur undir bókun af 6. fundi mennta - og menningarráðs þann 30. september sl. um að fulltrúar úr mennta- og menningarráði og skipulags- og umhverfisráði ásamt starfsfólki sviðanna skipi vinnuhóp sem skilar af sér niðurstöðum í síðasta lagi í lok febrúar 2027.Hluti af starfi vinnuhóps verður að koma með tillögu um launasamsetningu vinnuskólans.

 

6. 2610-7832 - 10. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

10. fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar.

Lagt fram.

 

7. 2610-7324 - Óðinsgata 6 - Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa

Lögð fram fyrirspurn Jóns Davíðs Ásgeirssonar, fyrir hönd 2Góma ehf., um breytingu á deiliskipulagi Sementsreits vegna Óðinsgötu 6, ásamt uppfærðum gögnum dags. 14. og 15. október 2026. Óskað er eftir stækkun og sameiningu byggingarreita og auknu byggingarmagni. Gert er ráð fyrir þriggja hæða húsi auk kjallara, með tannlæknastofu á fyrstu hæð og sex íbúðum á efri hæðum, í stað átta íbúða samkvæmt gildandi heimildum. Þriggja hæða bygging mun ná yfir stærri hluta reitsins en gildandi skipulag gerir ráð fyrir. Byggingarmagn ofanjarðar verði allt að 1.214 m², þar af 1.145 m² A-rými og 69 m² B-rými. Jafnframt er gert ráð fyrir að innkeyrsla í bílakjallara færist 4,2 m til suðurs. Í uppfærðum gögnum er gerð nánari grein fyrir nýtingarhlutfalli, bílastæðum og aðkomu.

Skipulags- og umhverfisráð telur að fyrirhugað byggingarmagn og umfang þriggja hæða byggingar falli ekki nægilega að þeirri byggðarmynd sem gildandi deiliskipulag gerir ráð fyrir. Umsækjanda er bent á að endurskoða tillöguna með það að leiðarljósi í samráði við skipulagsfulltrúa.

 

9. 2605-3704 - Breyting á deiliskipulagi Höfðasels

Lögð er fram að lokinni auglýsingu tillaga að breytingu á deiliskipulagi iðnaðarsvæðis í Höfðaseli vegna tengingar Grjótkelduflóa við Akrafjallsveg. Tillagan var auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 7. september til og með 19. október 2026. Ein umsögn barst frá Veitum þar sem bent er á stofnlögn á framkvæmdasvæðinu og óskað eftir samráði vegna framkvæmda.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og birt í B-deild Stjórnartíðinda. Við hönnun og framkvæmd verði haft samráð við Veitur vegna stofnlagnar á svæðinu.

 

10. 2605-3703 - Deiliskipulag Æðaroddi

Lögð er fram að lokinni auglýsingu tillaga að breytingu á deiliskipulagi Æðarodda vegna breyttrar tengingar við Akrafjallsveg ásamt umsögnum, athugasemdum og drögum skipulagsfulltrúa að svörum. Tillagan var auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 7. september til og með 19. október 2026. Þrjár athugasemdir bárust sem varða einkum áhrif á reiðleiðir, öryggi hestafólks og samráð við notendur svæðisins. Jafnframt bárust umsagnir frá Vegagerðinni og Veitum.

Skipulags- og umhverfisráð þakkar fyrir framkomnar umsagnir og athugasemdir. Ráðið frestar afgreiðslu tillögunnar og felur skipulagsfulltrúa að boða til fundar með fulltrúum Hestamannafélagsins Dreyra og Fjáreigendafélags Akraness til að fara yfir framkomnar athugasemdir, fyrirhugaða aðkomu og útfærslu reiðleiða. Að fundi loknum verði málið lagt aftur fyrir ráðið ásamt drögum að svörum við umsögnum og athugasemdum.

 

11. 2609-7102 - Sleðabrekka - lýsing

Farið er yfir stöðu málsins í ljósi athugasemda sem bárust í framhaldi af kynningarbréfi.

Skipulags- og umhverfisráð felur umhverfisstjóra og skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.

 

12. 2608-5711 - Sementsreitur - Yfirborðsfrágangur

Tillaga til skoðunar (kynningar) að dæmigerðu yfirbragði götu á Sementsreitnum. Við tökum dæmi þar sem er annarsvegar innkeyrsla í bílakjallara öðru megin og innkeyrsla inn á bílastæði hinu megin. Þar sjáum við mikið af því sem er að gerast í dæmigerðri götu. Teikningin sýnir tvær útfærslur (mismunandi helluval og mynstur) og dæmigert götusnið.

Lagt fram til kynningar. Skipulags- og umhverfisráð felur umhverfisstjóra að vinna málið áfram.

 

13. 2611-8320 - Göng og brú

Guðmundur Daði Rúnarsson, forstjóri Göng og Brú, kynnti vinnu félagsins og fyrirhugaðar framkvæmdir félagsins. Sturlaugur Haraldsson, bæjarstjóri, og Alfreð Alfreðsson, rekstrarstjóri áhaldahúss, sitja fundinn undir þessum lið.

Skipulags- og umhverfisráð þakkar Guðmundi fyrir kynninguna. Sturlaugur Haraldsson og Alfreð Alfreðsson víkja af fundi.

 

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu