Fara í efni  

Skipulags- og umhverfisráð

364. fundur 26. október 2026 kl. 08:15 - 10:30 Klöpp, Dalbraut 1
Nefndarmenn
  • Ragnar B. Sæmundsson formaður skipulags- og umhverfisráðs
  • Hrafn Ágúst Björnsson varaformaður skipulags- og umhverfisráðs
  • Viktor Elvar Viktorsson aðalmaður
  • Jón Guðni Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Anna Sólveig Smáradóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sigurður Páll Harðarson sviðstjóri
  • Berglind Sigurðardóttir skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði: Berglind Sigurðardóttir skipulagsfulltrúi

1. 2605-3445 - Fjárfestingaráætlun 2026-2027

Fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun 2027 lögð fram til kynningar.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir endurskoðaða fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun vegna ársins 2027-2033 og vísar henni áfram til bæjarráðs.

 

2. 2610-7984 - Gjaldskrá 2027 - Sorpurðun Vesturlands

Drög að gjaldskrá fyrir Sorpurðun Vesturlands send á sveitarstjórnir. Gjaldskráin hækkar um 2,5% og verð síðan færð í heila krónu.

Gjaldskráin lögð fram til kynningar og málinu vísað til bæjarráðs til afgreiðslu.

 

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu