Skipulags- og umhverfisráð
|
1. 2610-7284 - Húsnæðismál - Slökkviliðið Umræða um húsnæðismál og aðstöðu slökkviliðsins á Akranesi og Hvalfjarðarsveit. Skipulags- og umhverfisráð vísar afgreiðslu málsins til fjárhags- og fjárfestingaráætlunar 2027 og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs frekari úrvinnsl málsins. Varðandi kostnaðarskiptingu verði rætt við fulltrúa Hvalfjarðasveitar.
|
|
2. 2610-7315 - 9. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa 9. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa lagður fram til kynningar Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
|
3. 2610-7244 - Breyting inni: Grenigrund 33, 300 Akraneskaupstaður Sótt er um byggingarleyfi vegna breyttrar notkunar í bílskúr. Sótt er um að gera litla snyrtistofu í hluta af bílskúr. Fasteign er á ódeiliskipulögðu svæði og vísar byggingarfulltrúi málinu áfram til skipulags- og umhverfisráðs. Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn vegna breyttrar notkunar hluta bílskúrs við Grenigrund 33 í snyrtistofu, samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ráðið felur skipulagsfulltrúa að annast grenndarkynningu fyrir eigendum og íbúum að Grenigrund 31, 35, 32, 34 og 36. Ráðið samþykkir að grenndarkynna þessa breytingu á þeim forsendum að starfsemin er lítil í sniðum, kallar ekki á verulega aukna umferð, bílastæði eru næg og breytingin hefur ekki neikvæð áhrif á eðli íbúaðahverfisins. Ráðið brýnar sömuleiðis að vinna þarf deiliskipulag fyrir Grundahverfið.
|
|
4. 2609-7102 - Sleðabrekka - lýsing Tillaga um að lýsa upp sleðabrekkuna var send á næstu nágranna til upplýsingar. Svör bárust frá 3 aðilum með athugasemdum við framkvæmd. Skipulags- og umhverfisráð þakkar fyrir þær ábendingar sem hafa borist og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samráði við íbúa.
|
|
5. 2604-3371 - Veðurstöð á Akranesi Umhverfisstjóri hefur átt í samtali við Veðurstofuna og Veitur um að setja upp veðurstöð á Akranesi og rekstur hennar. Fyrirhuguð staðsetning er innan lóðar golfvallarins. Þarna gefst einnig tækifæri til að setja upp mælistöð fyrir loftmengun. Skipulags- og umhverfisráð tekur jákvætt í erindið og óskar eftir að útbúinn verði samningur milli þessara aðila og lóðarhafa um framkvæmdina og rekstur stöðvarinnar. Einnig að unnin verði tillaga að setja upp loftgæðamæli í stöðinni og hvernig upplýsingar frá honum verða birtar íbúum.
|
|
6. 2610-7511 - Merkjalýsing Reynigrund 15 Varðar merkjalýsingu Grundahverfis. Lóðarhafar Reynigrundar 15 benda á að lóðarmörk eru ranglega merkt inn á mæliblöð á milli lóðanna Reynigrundar 13 og Reynigrundar 15. Skipulags- og umhverfissvið þakkar fyrir ábendinguna. Lóðamörk Reynigrundar 13 og 15 verða leiðrétt til samræmis við ábendingu.
|
|
7. 2610-7591 - Svæði fyrir duftreit í Kirkjugarði Akraness. Óskað er eftir kostnaðarþátttöku Akraneskaupstaðar vegna mótunar duftreits innan Kirkjugarðs Akraness. Fyrirhugað er að stalla hallandi svæði sem rúmar um 150 duftker. Hátt í 50 pláss hafa þegar verið nýtt eða tekin frá. Áætlaður kostnaður er 1,5–2 milljónir króna og framkvæmdir fyrirhugaðar haustið 2026. Jafnframt eru kynnt framtíðaráform um að bæta grafardýpt innan garðsins með jarðvegi úr mön við Garðagrund og stækka garðinn yfir aðliggjandi svæði sem áður var ætlað fyrir kirkju. Verklýsing og kostnaðaráætlun vegna þeirra áforma liggja ekki fyrir. Skipulags- og umhverfisráð tekur jákvætt í erindið og vísar ósk um kostnaðarþátttöku Akraneskaupstaðar vegna uppbyggingar duftreits í Kirkjugarði Akraness til fjárhagsáætlunar 2027.
|





